top of page
Anchor 1

Félagsaðild

Myndlistarmönnum gefst kostur á að sækja um félagsaðild í SÍM uppfylli þeir nauðsynleg inntökuskylirði. 

 

SÍM samanstendur af eftirtöldum aðildarfélögum og félagsmönnum þeirra ásamt félögum með einstaklingsaðild að SÍM: 

 

Félagsgjald

Félagsgjald er 26.000 kr. árið 2024. Athugið að félagsgjaldið er frádráttarbært frá skatti. 

 

  • Veittur er 25% hjónaafsláttur, ef báðir aðilar eru félagsmenn í SÍM.

  • Félagsmenn 70 ára og eldri greiða hálft félagsgjald.

  • Öryrkjar greiða hálft félagsgjald. 

 

Inntökuskilyrði

 

Að hafa lokið viðurkenndu námi í myndlist við viðurkenndan
listaskóla, eða sem svarar a.m.k. tveggja ára námi að loknu stúdentsprófi eða sambærilegu.

 

Að öðrum kosti þarf umsækjandi að uppfylla fjögur af neðangreindum skilyrðum:

 

1. Önnur menntun í myndlist (að lágmarki samtals 2 ár) staðfest með yfirlýsingu viðkomandi stofnunar.

 

2. Ein eða fleiri einkasýningar í opinberum sýningarstöðum. Staðfesting fylgi.

 

3. Þátttaka í alþjóðlegri sýningu, samsýningu styrktri af opinberum aðilum eða ekki færri en fimm samsýningum öðrum. Staðfesting fylgi.

 

4. Verið falið af dómnefnd að vinna að listskreytingu á opinberum vettvangi. Staðfesting fylgi.

 

5. Eiga minnst eitt verk í opinberri eigu, keypt af viðkomandi safnráði eða matsnefnd. Staðfesting fylgi.

 

6. Hafa hlotið opinberan styrk eða starfslaun. Staðfesting fylgi.

bottom of page