
Vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík opnar 9.maí
Vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík verður opnuð fimmtudaginn 9. maí kl. 17:00 í húsnæði skólans, JL-húsinu, Hringbraut 121. Verkin á sýningunni eru eftir 115 nemendur sem stunda samfellt nám í dagskóla.
Á listnámsbraut eru nemendur að búa sig undir háskólanám í list- og hönnunargreinum, annars vegar í árs fornámi fyrir nemendur með stúdentspróf og hinsvegar á tveggja ára námsbraut til stúdentsprófs. Nemendur á fyrra ári af tveimur sýna verkefni unnin í íslenskuáfanga en útskriftarnemendur sýna sjálfstæð lokaverkefni. Þrír nemendur sem útskrifast af keramikbraut sýna sjálfstæð lokaverkefni en aðrir nemendur á keramikbraut, listmálarabraut, teiknibraut og textílbraut sýna verkefni unnin á fyrra námsári af tveimur.
Sýningin verður opin milli kl. 13:00 og 18:00 næstu daga en henni lýkur kl. 18:00 mánudaginn 13. maí.
Allir hjartanlega velkomnir!
Opnunartímar:
9. maí kl. 17-19 – OPNUN
10. maí kl. 13-18
11. maí kl. 13-18
12. maí kl. 13-18 13. maí kl. 13-18
