
Vinsamlegast gangið á grasinu | Plöntuleiðangur
Agnes Ársælsdóttir, myndlistarmaður, kennir okkur að upplifa náttúruna á nýstárlegan og listrænan hátt! Forvitnilegur plöntuleiðangur fyrir alla fjölskylduna um nágrenni Gerðubergs í tengslum við sýninguna Heimsókn til Vigdísar, en frú Vigdís Finnbogadóttir hafði mikinn áhuga á skógrækt og plantaði trjám á öllum stöðum sem hún heimsótti á Íslandi.
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Laugardaginn 26. september kl. 14:00-15:00
Agnes Ársælsdóttir vinnur með samkennd og kímni í verkum sínum sem taka ýmist mynd í gjörningum eða textíl. Í verkunum kannar hún tengsl mannsins við umhverfi sitt með því að höfða til skynfæranna á óhefbundinn hátt. Agnes útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Ísland árið 2018, verk hennar hafa verið sýnd bæði hérlendis og erlendis.
Á sýningunni Heimsókn til Vigdísar er gestum á öllum aldri boðið að ganga inn í söguheim bókarinnar Vigdís. Bókin um fyrsta konuforsetann. Rán Flygenring, rit- og myndhöfundur, hannar sýninguna í samstarfi við Emblu Vigfúsdóttur sýningarstjóra. Segja má að veröld Vigdísar Finnbogadóttur, sem var fyrst kvenna kjörin forseti í heiminum, lifni við og gestir fá að kíkja í heimsókn og spegla sig í þeim gildum sem hún hefur alla tíð lagt svo mikla áherslu á, jafnt í lífi sem starfi. Sjón er sögu ríkari!
Nánar um Heimsókn til Vigdísar.

Skráning er á allflesta viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna. Sjá nánar hér. (setja tengil á https://borgarbokasafn.is/starfid-a-safninu/tilkynningar/vidmid-vegna-covid-19-safnid-er-opid Staðsetning viðburðar: Hittumst á neðri hæð Gerðubergs
Hámarksfjöldi þátttakenda: 15. Skráning hér.
Kaffihúsið er opið.