
Vinnuaðstaða fyrir listamenn í Króki á Garðaholti
Auglýst er eftir umsóknum listamanna/fræðimanna um tímabundna vinnuaðstöðu í Króki á Garðaholti

Auglýst er eftir umsóknum listamanna/fræðimanna um tímabundna vinnuaðstöðu í Króki á Garðaholti. Í boði eru 1-3 mánuðir í senn. Um er að ræða úthlutun frá miðjum september 2019 til og með maí 2020. Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri í netfangi hulda@gardabaer.is.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar