Þórarinn Eldjárn heldur fyrirlestur í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í tengslum við sýninguna Listamaður á söguslóðum – sunnudaginn 1. mars kl. 15:00
Þórarinn Eldjárn heldur fyrirlestur í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í tengslum við sýninguna Listamaður á söguslóðum
– sunnudaginn 1. mars kl. 15:00
Þarfur arfur og hirðdrápur
Í tengslum við sýninguna Listamaður á söguslóðum ætlar Þórarinn Eldjárn að lesa úr eigin verkum og spjalla um það sem hann og aðrir hafa ort og skrifað út frá íslenskum bókmennta – og sagnaarfi. Meðal annars kemur hann inn á og fer með drápur sem hann flutti þjóðhöfðingjum Norðurlanda vegna nýrra þýðinga á Íslendingasögum sem út komu á síðasta ári.