
Sýningaropnun: RÍKI – flóra, fána, fabúla
Laugardaginn 28. maí kl. 16 í Hafnarhúsi
Sýningin RÍKI – flóra, fána, fabúla er viðamikil sýning á verkum sem tengjast náttúrunni og flokkunarkerfi hennar. Sýningin veitir áhorfendum innsýn í listsköpun ólíkra listamanna með verkum frá síðustu árum og áratugum, glænýjum verkum sem og öðrum eldri úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson.
Á opnunardegi sýningarinnar kl. 17 flytur myndlistarmaðurinn Anna Fríða Jónsdóttir gjörning ásamt sellóleikaranum Ástu Maríu Kjartansdóttur í fjölnotasal Hafnarhússins.
Boðið verður upp á viðamikla dagskrá samhliða sýningunni, gjörninga, kvikmyndasýningar og fleira.