
SÍM AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM FYRIR GESTAVINNUSTOFU Í FINNLANDI
SÍM auglýsir eftir umsóknum frá félagsmönnum sem hafa áhuga á að dvelja í gestavinnustofu í borginni Vantaa í Finnland í október 2020
Umsóknarfrestur er til 20.júlí 2020
Gestavinnustofuskipti milli SÍM og Vantaa Artists’ Association í Finnlandi:
SÍM félaga er boðið að dvelja í einn mánuð í október 2020 og kemur finnskur myndlistarmaður í staðinn og dvelur í einn mánuð í gestavinnustofu SÍM á Korpúlfsstöðum í ágúst.
Dvalargjald er ekkert og listamaður fær 500 EUR í dvalarstyrk.
Hús Gjutars er í borginni Vantaa, nálægt Helsinki, en hún er fjórða stærsta borgin í Finnlandi. Gestavinnustofan er staðsett í gömlu húsi í miðri Vantaa. Gestavinnustofan er á efri hæðinni og er með sér svölum. Svefnherbergið er um 15 m2 á stærð. Í íbúðinni er ísskápur, eldavél, eldhúsáhöld og grunn-matvörur. Á baðherberginu er sturta og þvottavél. Þráðlaust net.
Vinnustofan er 22 m2 og er einnig á efri hæðinni. Á vinnustofunni er grafíkpressa og vaskur.
Gestalistamenn hafa aðgang að hjóli, en stutt er í lest og strætó. Að sama skapi er stutt í verslunarmiðstöð.
Umsókn skal senda á application@sim.is
Umsókn skal innihalda: ferilskrá, 4 myndir af verkum, og stuttan texta um gestavinnustofu dvölina.
