
Síðasti sýningardagur Kristínar Rúnarsdóttur í SÍM salnum
Verið velkomin á sýningu Kristínar Rúnarsdóttur í SÍM salnum, Hafnarstræti 16, Reykjavík.
Í dag 25. október er síðasti sýningardagurinn. Opið er frá kl. 10-16.
Verkin á sýningunni eru unnin með ýmsum efnum á pappír og hafa skírskotanir í ferðalög og manngert umhverfi.
Kristín Rúnarsdóttir býr og starfar í Keflavík. Hún lauk meistaranámi í myndlist frá Kunsthøgskolen i Bergen árið 2013 og BA námi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2009.
www.kristinrunarsdottir.com