
Setning Vetrarhátíðar – Passage eftir Nocturnal
Vetrarhátíð verður sett við Hallgrímskirkju 7. febrúar kl 19:00 með sýningu á verkinu Passage eftir listamannahópinn Nocturnal frá Nýja Sjálandi sem er unnið í samvinnu við List í ljósi. Verkinu verður varpað á Hallgrímskirkjuturn. Unnið er með íslenska arfleið og mun verkið vekja turninn til lífsins með mynd og hljóði.
Verkið verður til sýnis öll kvöld á hátíðinni frá kl 19-23.
Nocturnal varpaði verkinu Ekkó á Safnahúsið á Vetrarhátíð 2018