SUNNUDAGSLEIÐSÖGN Í LISTASAFNI ÍSLANDS: Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands leiðir gesti um sýninguna SAGA – ÞEGAR MYNDIR TALA, 24. maí kl. 14.
Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands leiðir gesti um sýninguna SAGA – ÞEGAR MYNDIR TALA. Sunnudaginn 24. maí kl. 14.
Á sýningunni má sjá valin verk fjölda íslenskra samtímamyndlistarmanna auk nokkurra erlendra er endurspegla frásagnarþáttinn í íslenskri sjónmenningu.
Sýningin var sýnd í Kunsthalle Recklinghausen 2014 og verður sýnd í KUMU; Samtímalistasafninu í Tallinn, Eistlandi nú í haust.
Verkin á sýningunni eru valin af safnstjóra Listasafns Íslands, Halldóri Birni Runólfssyni og þýskum sýningarstjóra, Norbert Weber,
og endurspeglar valið þá sýn á íslenska menningu sem hið glögga gestsauga getur veitt. Sýningin varpar ljósi á menningu þjóðar, frá innstu hugarfylgsnum til pólitískra átaka.