
Safnanótt í Gerðarsafni
Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 2. febrúar 2018 en þá opna fjölmörg söfn dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá frá klukkan 18:00-23:00. Lögð verður áhersla á að bjóða upp á óhefðbundna viðburði þetta kvöld og veita gestum nýja sýn á söfnin. Frítt er í sérstakan Safnanæturstrætó á milli allra safnanna. Á Safnanótt fer fram Safnanæturleikur. Hægt er að taka þátt í leiknum með því að svara laufléttum spurningum og safna stimplum frá mismunandi söfnum sem þú heimsækir. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar http://vetrarhatid.is
Kvik strik teiknileikur
18:00 – 21:00
Edda Mac, listakona og samstarfsaðili Gerðarsafns við gerð bókarinnar Kvik strik, kynnir aðalsögupersónur bókarinnar ásamt því að bjóða upp á skemmtilegan teiknileik fyrir alla fjölskylduna. Listakrákurnar Iða, Hringur og Litía, verða á hliðarlínunni og fara með fjölskyldum í gegnum sýninguna Líkamleiki.
Sjálfsmyndasmiðja
19:30 – 21:30
Við skoðum sjálfsmyndir í verkum sýningarinnar Líkamleiki og sköpum okkar eigin sjálfsmynd með óhefðbundnum hætti. Kennarar námskeiðsins hafa reynslu innan ljósmynda- og myndlistarheimsins og er smiðjan samansett af tæknilegri nálgun í bland við hugmyndavinnu. Smiðjan er hugsuð fyrir alla aldurshópa og hægt er að koma hvenær sem er innan tímaramma námskeiðisins.
Líkamleiki, leiðsögn með Brynju Sveinsdóttur sýningarstjóra
20:30 – 21:00 & 21:30 – 22:00
Brynja Sveinsdóttir mun ræða við gesti um sýninguna Líkamleiki sem er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands. Sýningin samanstendur af verkum 18 samtímalistamanna og inniheldur ný eða nýleg verk sem vísa í líkamann á ýmsa vegu. Sýningin hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir frumleg efnistök og nálgun á ljósmyndina sem listmiðil.
DJ í Garðskálanum
22:00 – 23:00
Við mælum með að ljúka kvöldinu í Garðskálanum þar sem plötusnúður mun halda uppi góðri stemningu. Garðskálinn hefur fest sig í sessi sem eitt af betri kaffihúsum bæjarins, rekið af hjónunum Ægi Friðrikssyni, sem er margverðlaunaður matreiðslumeistari og Írisi Ágústsdóttur, innanhússhönnuði, sem mótaði útlit staðarins