
Ókeypis ritsmiðja fyrir börn í Hugmyndasmiðjunni
Ókeypis ritsmiðja fyrir börn í Hugmyndasmiðjunni
Kjarvalsstaðir – laugardag 5. des. kl. 13-16
Ókeypis ritsmiðja fyrir börn verður haldin í Hugmyndasmiðjunni á Kjarvalsstöðum laugardaginn 5. des. kl. 13–16 í tengslum við sýninguna Út á spássíuna – textar, skissur, og pár í list Kjarvals. Á ritsmiðjunni læra þátttakendur að skrifa örsögur og sækja til þess innblástur í listaverk og umhverfi safnsins. Í lok smiðjunnar munu börnin skrifa eigin sögur byggðar á verkum Kjarvals, sem hægt verður að gefa foreldrum í jólagjöf.
Ritsmiðjan er öllum opin en hentar börnum sem eru byrjuð að skrifa og upp í 13 ára. Ekki þarf að skrá sig í ritsmiðjuna og þátttaka er ókeypis en gott er að mæta tímanlega.
Leiðbeinandi er Markús Már Efraím.