
Nr.1 Umhverfing opnuð í Safnahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Nr. 1 UMHVERFING
MYNDLISTARSÝNING
Þann 1. júlí 2017 verður myndlistarsýningin Nr.1 Umhverfing opnuð í Safnahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Sýningarhúsnæðið er annars vegar Safnahúsið, og hins vegar Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
Nafn sýningarinnar NR.1 Umhverfing vísar til þess að fleiri sýningar verði settar upp með sama móti víða um land á næstu árum í samstarfi við heimamenn.
Hugmyndasmiðir og skipuleggjendur verkefnisins eru myndlistamennirnir Anna Eyjólfs sem er jafnframt sýningarstjóri, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rúrí og Þórdís Alda Sigurðardóttir. Þessir myndlistamenn mynda kjarna sýninganna á hverjum stað. Hugmyndin er að setja upp myndlistarsýningar á stöðum og í húsnæði þar sem ekki er hefð fyrir nútímamyndlistarsýningum og þar sem ekki fyrirfinnst hefðbundið sýningarhúsnæði fyrir myndlist. Tilgangurinn er að færa myndlistina inn í óhefðbundið rými og skapa umræðu um tilgang lífs og lista.
Leitað hefur verið eftir samstarfi við myndlistamenn sem eiga rætur að rekja í Skagafjörðinn, og munu eftirfarandi myndlistarmenn taka þátt í sýningunni á Sauðárkróki;
Anna María Sigurjónsdóttir, Auður Aðalsteinsdóttir, Finna Birna Steinsson, Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson, Jóhannes Atli Hinriksson, Kristín Reynisdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Sólveig Baldursdóttir, Valgerður Bergsdóttir.
Sýningarskrá verður gefin út í tilefni sýningarinnar. Höfundar greina eru Margrét Elísabet Ólafsdóttir, list-og fagurfræðingur og Jón Ormar Ormsson. Hönnuður er Margrét Weisshappel.
Sýningin mun standa út september sem gefur möguleika á samstarfi við skólana á svæðinu, þar sem nemendur geta fengið leiðsögn um sýninguna og átt samtal við myndlistarmennina.
Viðburðurinn á Facebook.