
Málþing Safnasafnsins 03.11.
FRÁ JAÐRI TIL MIÐJU
Þróun íslenskrar alþýðulistar og staða hennar í dag
Safnasafnið býður til samtals um listir í Þjóðminjasafni Íslands laugardaginn 3. nóvember frá kl. 13.00 til 16.00.
Erindi flytja:
Níels Hafstein, myndlistarmaður og safnstjóri Safnasafnsins – Íslensk alþýðulist, þróun, gæði og staða á heimsvísu
Harpa Björnsdóttir, myndlistarmaður – Safnasafnið, rannsóknarsetur og safn íslenskrar alþýðulistar
Loji Höskuldsson, myndlistamaður segir frá verkum sínum
Margrét M. Norðdahl, myndlistarmaður – Alþjóðleg hugtök, nám og aðgengi í listheiminum. Margrét segir einnig frá verkum bandarísku listakonunar Judith Scott og frá verkum Gíu (Gígju Thoroddsen).
Fundarstjóri er Unnar Örn J. Auðarson, myndlistarmaður
Veitingar í boði Safnasafnsins í hléi.
Þátttakendur í pallborði:
• Bjarki Bragason, myndlistarmaður og lektor við Listaháskóla Íslands
• Eiríkur Þorláksson, listfræðingur og sérfræðingur í Mennta- og menningarmálaráðuneyti
• Harpa Þórsdóttir, listfræðingur og safnstjóri Listasafns Íslands
• Inga Björk Bjarnadóttir, MA nemi í listfræði við Háskóla Íslands og fötlunaraktivisti
• Ragna Sigurðardóttir, myndlistarmaður og rithöfundur
Verið öll hjartanlega velkomin!
Aðgengi er gott í Þjóðminjasafninu. Vinsamlegast látið okkur vita ef þörf er á táknmálstúlkun.