
Listin talar tungum: Tékkneska/Slóvakíska, sunnudag 17. febrúar kl. 13.00 á Kjarvalsstöðum
Listin talar tungum: Tékkneska/Slóvakíska – Čeština/Slovenčina Sunnudag 17. febrúar kl. 13.00 á Kjarvalsstöðum |
Listasafn Reykjavíkur býður upp á myndlistaleiðsögn á ýmsum tungumálum í samstarfi við Móðurmál – samtök um tvítyngi. Listfræðingurinn Michala Frank Barnová verður með leiðsögn á tékknesku um sýningarnar á Kjarvalsstöðum. Minnum á Klambra bistro fyrir léttan hádegisverð! Listin talar tungum er hluti af hluti af innleiðingu stefnu menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar um fjölbreytta menningu í borginni 2017-2020 Rætur og vængir. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur. |