
Listamannaspjall: Bára Kristinsdóttir og Ólöf Nordal
Fimmtudaginn 25. ágúst kl. 20 í Hafnarhúsi
Listamennirnir Bára Kristinsdóttir og Ólöf Nordal ræða við gesti um verk sín á sýningunni RÍKI – flóra, fána, fabúla. Bára sýnir ljósmyndaverkin Beita frá árinu 2007 og Ólöf skúlptúrana Þrjú lömb og kálfur frá 2009. Verkin spretta úr pælingum um hvernig við færum huglæg gildi og merkingu yfir á náttúruna. Bára veltir fyrir sér stigveldi lífríkisins eftir notagildi fyrir manninn og Ólöf færir til samtímans forna hjátrú um furður náttúrunnar.
Leiðsögnin tekur um klukkustund. Opið er í Hafnarhúsinu til 22 öll fimmtudagskvöld og Kaffi og matstofa Frú Laugu býður upp á ljúffengar veitingar. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Menningarkorts Reykjavíkur.
Mynd: Verk eftir Ólöfu Nordal og Báru Kristinsdóttur