
LEIKUM AÐ LIST – Þingvallamósaík 02.02. á Kjarvalsstöðum
LEIKUM AÐ LIST – Þingvallamósaík
Laugardag 2. febrúar kl. 13-15.00 á Kjarvalsstöðum
Skemmtileg listasmiðja fyrir alla fjölskylduna í Hugmyndasmiðjunni á Kjarvalsstöðum, þar sem unnið verður sameiginlegt mósaíkverk í anda meistara Kjarvals í tengslum við sýninguna …lífgjafi stórra vona.
Aðgöngumiði inn á safnið gildir. Ókeypis fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Barnafjölskyldur eru sérstaklega boðnar velkomnar á Listasafn Reykjavíkur, því hvað er betra en að rölta um og skoða listaverk Í fjölskylduvænu umhverfi?
Reglulega er boðið upp á fjölskylduleiðsagnir sniðnar að yngri áhorfendum og listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra, þar sem gaman er að skapa sín eigin listaverk saman eftir heimsókn á safnið.
Á vorönn 2019 eru ýmsar listasmiðjur fyrsta laugardag í mánuði á Kjarvalsstöðum eins og Þingvallasmiðja, Op–Art smiðja og Blómasmiðja. Þá verður einnig Erró fjársjóðsleit í Hafnarhúsi, fjölskylduleiðsögn í Ásmundarsafni og ratleikir um útilistaverk á Klambratúni.
Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.