
Leiðsögn: Án titils – samtímalist fyrir byrjendur, 03/05 í Hafnarhúsi
Leiðsögn: Án titils – samtímalist fyrir byrjendur
Fimmtudag 3. maí kl. 20.00 í Hafnarhúsi
Listasafn Reykjavíkur býður upp á létta leiðsögn um sýninguna Tak i lige måde: Samtímalist frá Danmörku í Hafnarhúsi fyrir gesti sem vilja forvitnast um hvað er í gangi í samtímalist. Leiðsögnin er hugsðum fyrir fróðleiksfúsa byrjendur á öllum aldri.
Sagt verður stuttlega frá sögu Listasafns Reykjavíkur og hlutverki þess, sérstöðu Hafnarhúss sem miðstöðvar samtímamyndlistar og einstakri hönnun hússins.
Loks verða skoðuð nokkur verk á sýningunni og velt upp spurningum um hvað listamennirnir eru að pæla.
Boðið er upp á kvöldkaffi, afslappað spjall og rölt um sýningarsali með sérfræðingi á vegum safnsins.
Tilvalið sem hluti af kvöldstund með hópi vina eða samstarfsfélaga.
Allt sem þú vildir vita um samtímalist en þorðir ekki að spyrja!
Miði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.