
Kvikmyndasýning: Concerning Violence, fimmtudag 26. apríl kl. 20.00 í Hafnarhúsi
|
|
Kvikmyndasýning: Concerning Violence
Fimmtudag 26. apríl kl. 20.00 í Hafnarhúsi |
Í tengslum við sýninguna Tak i lige måde: Samtímalist frá Danmörkusem nú stendur yfir í Hafnarhúsi býður Listasafn Reykjavíkur upp á dagskrá sem kallast á við efni sýningarinnar. Þar eru verk fjögurra listamanna sem fjalla hver með sínum hætti um nýlendustefnu, fólksflutninga, þjóðarsjálfsmynd og landamæri. Fimmtudaginn 26. apríl kl. 20.00 verður heimildarmyndin Concerning Violence sýnd í Hafnarhúsinu. Concerning Violence er heimildamynd frá árinu 2014 eftir Göran Olsson. Myndin fjallar um þjóðernis- og sjálfstæðishreyfingar í Afríku á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar sem ögruðu valdi hvíta minnihlutans og herraþjóðanna. Myndin er byggð á ritgerðinni Concerning Violence eftir Frantz Fanon sem kom út 1961 í bókinni The Wretched of the Earth. Kvikmyndin er samframleiðsla milli Svíþjóðar, Finnlands, Danmerkur og Bandaríkjanna. 85 mín. Sýningin Tak i lige måde: Samtímalist frá Danmörku og dagskráin eru hluti af aldarafmælishátíð fullveldis Íslands. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.
|