
Hönnunarsjóður: opið fyrir umsóknir um ferðastyrki til 23. ágúst
Hönnunarsjóður auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki, þetta er þriðja úthlutun af fjórum í ár. Frestur til þess að sækja um styrk rennur út á miðnætti þann 23. ágúst, en hver ferðastyrkur nemur 100.000 krónum.
Dagsetningar fyrir næstu úthlutanir Hönnunarsjóðs 2018 eru:
Sumarúthlutun – Ferðastyrkir
Opnar 1. júní | Lokar 23. ágúst | Úthlutun 12. September
Vetrarúthlutun – Almennir styrkir og ferðastyrkir
Opnar 3. september | Lokar 8. október | Úthlutun 8. nóvember
📝 Rafrænt umsóknareyðublað er að finna á sjodur.honnunarmidstod.is