
Guðrún Vera sýnir í SÍM salnum
Myndlistarkonan Guðrún Vera Hjartardóttir opnar einkasýninguna KÆRA FRAMTÍÐ fimmtudaginn 5. júlí klukkan 17.00 – 19.00 í sýningarsal Samband íslenskra myndlistamanna Hafnarstræti 16.
Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar KÆRA FRAMTÍÐ.
Sýningin er innsetning og er sjálfstætt framhald af sýningunni Bakherbergið sem var sett upp í sýningaríminu Skothúsi síðastlið haust og skírskotaði þau verk til þróunar mannkyns samkvæmt kenningum Rudolf Steiners. Í kenningum hans kemur fram að manneskjan byrjar þróun sína sem skynfæri í himingeimnum og síðar þróaðist líkaminn. Sýningin Kæra framtíð er ákall til manneskjunar sem skynveru.
Sýningin stendur til 20. júlí, og er opin á skrifstofutíma Sím, kl.10:00 til 16:00 alla virka daga