Undraland: Unnar Örn með verk í vinnslu

fimmtudagur, 16. janúar 2025
Undraland: Unnar Örn með verk í vinnslu
Samhliða sýningunni Undraland sem verður opnuð 11. janúar í Ásmundarsafni, hefst verkefni sem stendur yfir árið 2025 þar sem samtímalistamenn verða með verk í vinnslu í Undralandi. Þá fjóra áratugi sem Ásmundur Sveinsson starfaði í húsinu var það vettvangur frjórrar listsköpunar. Yfir sýningartímabil Undralands er fimm samtímalistamönnum boðin aðstaða í húsinu til þess að vinna að eigin verkum í vinnslu eða hvers konar ferli. Fyrstur er Unnar Örn og þátttakendur í framhaldinu eru Ásta Fanney Sigurðardóttir, Halldór Ásgeirsson, Amanda Riffo og Sara Riel.
Unnar Örn sækir innblástur í hvers konar skrásetningu sögunnar. Formlegar heimildir, ljósmyndir, safngripir eða önnur óformlegri vegsummerki fortíðar verða listamanninum fóður í það sem hann kallar Tilraun um tímann.
Spurningar vakna um sögu, verðmætamat og valdakerfi; hvað er varðveitt, af hverjum og í hvaða tilgangi?
Unnar Örn fær aðgang að einstöku sérsafni sem varðveitt er í Þjóðminjasafni Íslands og er enn lítt kannað og hefur þar af leiðandi margræða sögn. Ásbúðarsafn, geymir um 20 þúsund muni sem safnað var af Andrési Johnson í Ásbúð í Hafnarfirði (1885-1965). Hann ánafnaði munina safninu og þótti á sínum tíma einn mesti minjasafnari sem uppi hafði verið á landinu. Frá unga aldri safnaði hann ýmsu, s.s. póstkortum, merkjum, peningum, peningaseðlum, frímerkjum og óteljandi öðrum smámunum sem til féllu frá degi til dags.
Unnar Örn Jónasson Auðarson fæddur árið 1974 í Reykjavík. Hann útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1999 og lauk meistaranámi við Listaháskólann í Malmö 2003. Síðasta einkasýning Unnars Arnar var í Glerhúsinu undir lok ársins 2024 og kallaðist Óminnissafnið.
Sýningin Undraland er verkefni tileinkað sögu Ásmundarsafns. Þar var heimili og vinnustofa Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara (1893-1982) sem hann hannaði sjálfur og byggði á árunum 1942-1950. Lóðin var í túnfæti bæjar sem hét Undraland. Ásmundur ánafnaði Reykjavíkurborg húsið og verk sín eftir sinn dag og var þar stofnað safn helgað minningu hans árið 1983.