Styrkir Letterstedtska sjóðsins - umsóknarfrestur til 15. febrúar 2025

föstudagur, 14. febrúar 2025
Styrkir Letterstedtska sjóðsins - umsóknarfrestur til 15. febrúar 2025
Letterstedtski sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða.
Sjóðurinn kallar hér með eftir umsóknum um styrki vorið 2025. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk.
1. Íslandsdeild Letterstedtska sjóðsins veitir styrki vegna ferða frá Íslandi til Norðurlanda og til Eystrasaltsríkjanna.
Styrkupphæð jafngildir lægsta flugfargjaldi milli viðkomandi landa, en hvorki eru veittir styrkir til ferða innan landanna né til uppihalds. Þeir einir koma til greina sem lokið hafa námi og hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingarleit á starfssviði sínu, svo sem við rannsóknir á vísinda- eða fræðastofnun eða með þátttöku í fundum eða ráðstefnum.
Umsóknareyðublað og upplýsingar er að finna á vefsíðu sjóðsins:
www.letterstedtska.org/anslag/anslagsutlysning/
Þessum umsóknum má skila á íslensku.
Nánari upplýsingar veita:
Bryndís Sverrisdóttir, ritari, í síma 8530602 eða bryndis.sverris@gmail.com
Guðný Gerður Gunnarsdóttir, formaður, í síma 8535546 eða gudnygerdur@simnet.is
2. Aðalstjórn Letterstedtska sjóðsins (Letterstedtska föreningens huvudstyrelse) í Stokkhólmi veitir eftirtalda styrki:
a) Styrki að upphæð 10-50.000 SEK til ráðstefnuhalds, til að kosta heimsóknir fyrirlesara, til vísindaferða, prentunar, þýðinga og netútgáfu.
b) Styrki til útgáfu doktorsritgerða og rannsóknarstarfa. Forsenda styrkveitinga er að umrædd starfsemi hafi samnorrænt gildi eða tilvísun.
c) Samnorrænar stofnanir geta sótt um styrki til bóka- og tækjakaupa.
d) Styrki til þýðinga, prentunar og útgáfu rita og bóka á Norðurlandamálum. Sjá nánar á vefsíðu sjóðsins: Nyhlénska medlen för översättningar.
e) Árið 2025 eru 150 ár liðin frá stofnun sjóðsins og af því tilefni standa einnig til boða sérstakir styrkir fyrir unga námsmenn og listamenn með áherslu á norræna samvinnu. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins: www.letterstedtska.org.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar er að finna á: www.letterstedtska.org/anslag/anslagsutlysning/
Umsóknir til aðalstjórnar skal senda á sænsku, dönsku eða norsku í síðasta lagi 15. febrúar 2025.