top of page

Steingrímur Eyfjörð: 1978

508A4884.JPG

fimmtudagur, 17. október 2024

Steingrímur Eyfjörð: 1978

Steingrímur Eyfjörð opnar einkasýninguna 1978 í Listval Gallerí. Fyrir sýninguna 1978 hefur Steingrímur Eyfjörð unnið með hugmyndir og handrit að verkum sem vísa til tímabilsins 1957 til 1981 í íslenskri listasögu.

Verkin á sýningunni eru hugleiðingar Steingríms um avant-garde tímabilið í íslenskri myndlistarsögu og hans persónulega sýn á listasögu þessa tíma. List um list, eða lifandi listasaga eins og hann kýs að kalla hana og þá sem mótvægi við opinbera listasögu.

Hluti af sýningunni verður útgáfurit sem fjallar ítarlega um verk sýningarinnar ásamt rituðu efni um tímabilið. Þar verður einnig birt samtal sem Steingrímur átti í sumar við Auði Hildi Hákonardóttur, Benedikt Hjartarson, Guðlaug Míu Eyþórsdóttur, Halldór Björn Runólfsson, Margréti Elísabet Ólafsdóttur og Unnar Örn, þar sem umræðuefnið var söguleg þróun myndlistar á þessu ákveðna tímabili í íslenskri listasögu.

Steingrímur Eyfjörð (f. 1954) er meðal hinna fremstu í þeirri kynslóð íslenskra listamanna sem fram kom á áttunda áratugi síðustu aldar. Í vinnu sinni nýtir hann sér fjölbreytta miðla, þar á meðal ljósmyndun, teiknimyndir, myndbönd, málun, skúlptúra, gjörningalist, skrif og innsetningar. Efnisvalið er álíka fjölbreytt; hann sækir innblástur í jafn ólíkar áttir og þjóðsögur, Íslendingasögur, tískutímarit, trúarbrögð, hjátrú, krítíska teoríu og margs konar annað efni úr samtímanum, í meðförum hans skarast þau á margræðum tengipunktum þannig að úr verða marglaga verk, á stundum rugla þau mann í ríminu en í þeim birtist ævinlega skýr og óvænt sýn á þau viðfangsefni sem unnið er með. Steingrímur var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2007.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page