top of page

Sjóður Listaverkasafns Valtýs Péturssonar

508A4884.JPG

fimmtudagur, 4. apríl 2024

Sjóður Listaverkasafns Valtýs Péturssonar

„Líklega væri langbezt fyrir íslenzka myndlist ef öll þjóðin málaði“ Valtýr Pétursson.

Árið 2011 var stofnaður sjóður Listaverkasafns Valtýs Péturssonar í þeim tilgangi að halda ævistarfi hans til haga.

Í tilefni 105 ára afmæli Valtýs Péturssonar þann, 27. mars síðastlinn, var veglegum styrk úthlutað til Listasafns íslands og Listasafns á Akureyri til kaups á listaverkum eftir ungt myndlistarfólk.

Listamennir sem Listasafn íslands keypti verk eftir eru:

Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð, Joe Keys, Sigrún Hlín Sigurðardóttir og Una Margrét Árnadóttir

Listasafn Íslands fagnar þessum nýjum aðföngum í listaverkaeign þjóðarinnar og þakkar stjórn Listaverkasafns Valtýs fyrir rausnarlega gjöf og velvilja.

Valtýr Pétursson (1919−1988) var afkastamikill listmálari og meðal brautryðjenda abstraktlistar hér á landi. Hann átti litríkan og margslunginn feril, var ötull gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi myndlistarmanna og því mjög við hæfi að afmæli hans sé fagnað með því að styrkja ungt myndlistarfólk.

Á myndinni eru samankomin innkaupanefnd Listasafns Íslands, stjórn Listaverkasafns Valtýs Péturssonar og listamenn sem keypt voru verk eftir eða fulltrúar þeirra.

Mynd: Elisa B. Guðmundsdóttir

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page