top of page

Samkeppni um útilistaverk í Vesturvin - Vinningstillaga

508A4884.JPG

fimmtudagur, 13. mars 2025

Samkeppni um útilistaverk í Vesturvin - Vinningstillaga

Haustið 2024 var myndlistarmönnum boðið að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um listaverk í almannarými í Vesturvin á Héðinsreit í Vesturbæ Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg og lóðarhafar sameinast um listsköpun á svæðinu til að auka gæði og gott umhverfi í borginni. Listasafn Reykjavíkur hafði umsjón með samkeppninni sem fór fram eftir samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM), það er lokuð samkeppni með opnu forvali.

Forvalsnefnd sem skipuð var fulltrúum lóðarhafa – Festir ehf, Listasafns Reykjavíkur og SÍM, valdi þrjá myndlistarmenn úr innsendum umsóknum til þátttöku í seinni hluta samkeppninnar. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Elín Hansdóttir og Finnur Arnar Arnarson voru valin til þess að vinna tillögur að verki. Við val á listaverki skal metið á hvern hátt verkið auðgar mannlíf í Vesturvin, fegrar eða virkjar vannýtt svæði og skapar spennandi umhverfi.

Niðurstaða dómnefndar liggur nú fyrir og hefur hún valið verk Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur sem vinningstillöguna. Í umsögn dómnefndar segir:

,,Listaverk Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur, Rif, er skúlptúr sem stendur á hringlaga undirstöðu, bronsafsteypa af rifbeini hvals á steyptri terrazzo skífu. Verkið er einnig gagnvirkur áttaviti þar sem höfuðáttirnar eru inngreyptar í skífuna og beininu má snúa þar sem það er fest á snúningslegu. Verkið tekur þannig mið af umhverfi sínu með vísunum í lífríki hafsins, siglingafræði og skipasmíði. Verkið er jafnframt þátttökuverk þar sem gestir og gangandi í inngarðinum í Vesturvin geta snúið beininu og leikið sér með verkið.
Gæði verksins felast í einfaldleika þess en jafnframt djúpum vísunum til umhverfisins og náttúrunnar. Hvalbeinið sem unnið er með er úr Íslandssléttbak sem er tegund í útrýmingarhættu. Verkið verður sýnilegt öllum sem eiga leið um garðinn, sem er almenningsrými, og getur vakið áhorfendur til umhugsunar og orðið kennileiti og áhugavert uppbrot í umhverfinu í Vesturvin. Litir terrazzo undirstöðunnar munu jafnframt setja svip á svæðið og vera svipmiklir úr íbúðunum í kring. Verkið er jafnframt einkennandi fyrir feril Önnu Júlíu og áhugaverður liður í þróun og framvindu hennar listsköpunar.“

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page