top of page

Sýningin Magn í Hannesarholti

508A4884.JPG

fimmtudagur, 10. október 2024

Sýningin Magn í Hannesarholti

Á sýningunni Magn í Hannesarholti eru glæný verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur bæði tví – og þrívíð sem fjalla um liti lífsins, neyslu mannsins og magn þ.e. stærð, fjölda, ofnotkun efna eða jafnvel magn sem mátt eða afl.

Listin er alþjóðlegt hreyfiafl og þannig vill listamaðurinn túlka heiminn í gegnum verk sem vonandi hreyfa við áhorfendum og fá þau til þess að spyrja spurninga varðandi ofneyslu mannsins, ofhleðslu eða jafnvægi lita eða meta fegurðina og einfaldleikann í að endurnota/uppvinna efni (skapandi endurvinnsla).

Sýningin verður opin 10.-29. október frá kl.11.30-16 alla daga nema sunnudaga og mánudag. Það verður formleg opnun laugardag 12. október kl. 14-16 þar sem listamaðurinn mun einnig lesa ný ljóð.

Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr endurunnum listaverkum á striga, endurnotuðum rafmagnsvírum, brotum, hlutum eða afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri, plasti og málmum.

Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari. Hún lauk tvíhliða BA námi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiploma í listkennslu við LHÍ á haustönn 2019. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar, Kirsuberjatrénu, í Suðsuðvestur, Flóru á Akureyri, í SÍM salnum, Slunkaríki, sal Íslenskrar grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands, Hafnarborg, Listasafni Reykjanesbæjar, Svavarssafni, Norræna húsinu, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur tekið þátt í fjölda upplestra.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page