top of page

Sérekjör fyrir félagsmenn: Árið án sumars

508A4884.JPG

fimmtudagur, 6. febrúar 2025

Sérekjör fyrir félagsmenn: Árið án sumars

Tryggðu þér leikhúsmiða á sérkjörum! Rómantísk hrollvekja um vináttu og veður..

Nýjasta verk Marmarabarna, Árið án sumars, er sýnt á stóra sviði Borgarleikhússins. Verkið er lokahluti hamfaraþríleiks hópsins.

Félagsmenn SÍM geta tryggt sér miða á sérkjörum – á aðeins 5.500 kr!

Smelltu á hlekkinn hér að neðan og tryggðu þér sæti á einum stærsta sviðslistaviðburði ársins:
https://tix.is/is/bl/specialoffer/fyasp74vkxovs

Sýningar:
9. febrúar
23. febrúar

(Ath! hlekkur er ekki virkur ef hann er afritaður úr vafra.)

Hópur ungskálda bíður af sér óvenjulegan sumarstorm í sveitasetri við Genfarvatn. Þau drepa tímann með ýmsum óhugnaði en þetta kvöld er eitthvað annað og meira sem ásækir þau en bara skáldskapur.
Árið án sumars er ögrandi sjónarspil innblásið af raunverulegum atburðum sem áttu sér stað árið 1816 sem er betur þekkt sem árið án sumars. Höfuðskáld Rómantíkurinnar ætluðu sér að sleikja sólina við Genfarvatn en þurftu oft að verja tíma innandyra vegna veðurs því eldgos hinum megin á hnettinum hafði valdið óvenjulegu gjörningaveðri. Ýmis bókmenntaverk urðu til í þessari afdrifaríku sumardvöl, þar má nefna Frankenstein eftir Mary Shelley, Vampíruna (e. The Vampyre) eftir John Polidori og sum þekktustu ljóð Byrons lávarðar.

Eins og þegar Viktor Frankenstein horfðist í augu við skelfilegt sköpunarverk sitt eða líkt blóðþyrstri vampíru sem svífur á fórnarlamb, stöndum við nú líka andspænis ógurlegri afturgöngu: afleiðingum gjörða okkar í formi loftslagsbreytinga.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page