top of page

Pólskir menningardagar í Listasafni Árnesinga

508A4884.JPG

fimmtudagur, 7. nóvember 2024

Pólskir menningardagar í Listasafni Árnesinga

Helgina 9-10 nóvember mun Listasafn Árnesinga að halda pólska menningardaga og er það til að halda upp á þjóðhátíðardag Póllands sem er 11.11 og höfum við fengið til liðs við okkur listakonuna og verkefnastjórann Martynu Hopsa sem býr og starfar í Hveragerði. Hún hefur sett saman lista yfir skapandi íslensk/pólska einstaklinga og fyrirtæki sem munu koma í Listasafn Árnesinga þessa helgi og vera með kynningar á starfsemi þeirra.

Pólsk myndlist- og menning er mjög áhugaverð og mikilvægt fyrir okkur að kynnast henni betur þar sem að við höfum nú búsetta á Íslandi yfir 20þús. manns af pólskum uppruna, sumir koma í stuttan tíma en sumir hafa sest hér að og eru þau öll mjög mikilvæg í samfélaginu okkar.

Listasafnið hefur mikið reynt að ná til pólskumælandi íbúa samfélagsins með að hafa auglýsingar oft á pólsku líka og með þessum viðburði viljum við opna enn frekar á samstarf við pólsk/íslenska listamenn og pólska menningu.

Aðilar frá pólska sendiráðinu munu einnig koma að menningardögunum og bæjarstjórar Árborgar og Hveragerðisbæjar munu einnig vera á staðnum 9. nóv. Kl. 13:00.

Eftirtaldir listamenn og skapandi fólk tekur þátt:

Marzena Waleszczyk
Misha Martin
Plis Ceramic
Anka Holik
Viola Jak
Julia Bytomska
Reykjavik Letterpress
Milkowska Art
Myndlistavöruverslunin Artsupplies
MOLO101 Rvk
Martyna Hopsa
Małgorzata Porażewska
Agnieszka Waszczeniuk
Anna Maria Tabaczyńska & Jacek Karwan
Maó Alheimsdóttir

Verkefnastjóri er Martyna Hopsaþ

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page