top of page

Kristín Gunnlaugsdóttir: Portrett

508A4884.JPG

fimmtudagur, 24. október 2024

Kristín Gunnlaugsdóttir: Portrett

Í Himinbjörgum Listhúsi opnar sýning Kristínar Gunnlaugsdóttur, Portrett, í sýningarrýminu 3 Veggjum listrými næstkomandi laugardag kl : 15:00.

Á sýningunni eru 65 portrett, unnin frá árinu 2019 - 2024. Verkin eru öll unnin með bleki á akrýlgrunnaðan málarapappír, allar í sömu stærð eða 57 x 57 cm. Unnið er með lifandi fyrirmynd en markmiðið er ekki að líkjast henni sem mest, heldur er andlit þess sem situr fyrir nýtt til stuðnings fyrir hvert portrett. Hvert portrett þarf að verða einstakt og ná að búa yfir eigin sögu sem áhorfandinn skynjar. Penslinum er dýft í svart blekið og síðan er málað beint á pappírinn, hver lína óafturkræf. Fyrirmyndin situr fyrir í um 3 klst. og 40 - 60 myndir eru gerðar í hverri lotu, málað er yfir flestar en nokkrar teknar undan til endurskoðunar og einstaka fá innrömmun.

Þess má geta að Kristín sem er þjóðkunn fyrir myndlist sína var nýverið valin til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi. Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Á sýningunni verða sett fram lykilverk frá ólíkum tímum á ferli listamannsins í Vestursal Kjarvalsstaða og gefin er út vegleg sýningarskrá þar sem fjallað er um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans.

Kristín Gunnlaugsdóttir (f. 1963) hóf snemma myndlistarnám í Myndlistaskólanum á Akureyri eða 1975 með námskeiðum og lauk þaðan fornámi 1986. Hún útskrifaðist frá Myndlista- og Handíðaskólanum 1987. Á árunum 1987 – 1988 dvaldi hún í klaustri í Róm og lærði þar íkonagerð og málun. Árið 1995 útskrifaðist hún með láði frá Accademia di belle Arti í Flórens. Í myndlist sinni vinnur Kristín aðallega málverk, veggteppi með útsaumi, teikningar, eggtemperur með blaðgulli og vatnslitamyndir. Kristín hefur haldið fljölda einkasýninga og tekið þátt í listviðburðum heima sem erlendis.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page