Jóladagatalið í Nýlistasafninu
fimmtudagur, 28. nóvember 2024
Jóladagatalið í Nýlistasafninu
Þann 1. desember 2024 kl. 15:00 opnar Jóladagatalið í Nýlistasafninu. Sýningin samanstendur af 24 skúlptúrverkum, einni jólastjörnu og einum aðventukransi. Í anda hinna klassísku jóladagatala er eitt verk afhjúpað á hverjum degi, einn gluggi opnaður inn í heim listamanns úr hinni fjölbreyttu íslensku listasenu. Einnig verður hægt að fylgjast með dagatalinu á instagramsíðunni @joladagatalid og hér á Facebook.
Jólin eru tími samveru, ljóss og friðar. Dagatalið veit það og því verður boðið upp á ýmiskonar viðburði á sýningartímanum. Á hverjum sunnudegi verður tendrað ljós á kerti í aðventukransinum samhliða afhjúpun verks. Annan í aðventu, 8. desember kl. 14:00, býður handavinnuhópurinn Hnökkrarnir upp á opinn handavinnuhitting þar sem gestir eru hvattir til að mæta með prjónadótið eða flíkur sem þarf að flikka upp á. Hægt verður að fá aðstoð við handavinnuna og þiggja leiðsögn um sýninguna.
Piparkökur eru ómissandi í jólavertíðinni. 14. desember kl. 17:00 er hægt að mæta í safnið, skoða verk og skreyta piparkökur með ginkokteil við hönd. Klukkan 19:00 verður besti piparkökulistarmaðurinn krýndur sigurvergari.
Seinasti sýningardagur er 28. desember 2024. Það er jafnframt eini dagurinn sem hægt er að sjá öll verkin!
Listamenn sem taka þátt eru:
Anna Hrund Másdóttir
Anna Margrét Ólafsdóttir
Amanda Riffo
Atli Pálsson
Brák Jónsdóttir
Egill Logi Jónasson
Eygló Harðardóttir
Geirþrúður Einarsdóttir
Gjörningaklúbburinn
Hildigunnur Birgisdóttir
Hlökk Þrastardóttir
Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Ívar Glói
Jasa Baka
KÁHH-greining (Kata Jóhanness & Katla Björk)
Magnús Helgason
Martina Priehodová
Páll Haukur
Ragnheiður Káradóttir
Ragnhildur Weisshappel
Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson
Sigurrós G. Björnsdóttir
Sindri Leifsson
Una Sigtryggsdóttir
Sýningunni er stýrt af: Auður Lóa Guðnadóttir & Berglind Erna Tryggvadóttir
Viðburðir eru styrktir af: Bio-bú, Omnom og Himbrimi gin.