top of page

Jóla-listaverkamarkaður í Mosfellsbæ

508A4884.JPG

miðvikudagur, 11. desember 2024

Jóla-listaverkamarkaður í Mosfellsbæ

Yfir 50 lista­menn sýna og selja list sína á Jóla-lista­mark­aði í Listasal Mosfellsbæjar.

Mark­að­ur­inn kem­ur til í fram­haldi af sam­þykkt Menn­ing­ar- og lýð­ræð­is­nefnd­ar um að síð­asta sýn­ing árs­ins yrði að þessu sinni lista­verka­mark­að­ur í stað hefð­bund­inn­ar sýn­ing­ar. Hug­mynd­in kom frá íbúa, þótti áhuga­verð og til þess fallin að styðja við lista­fólk í bæn­um.

Á sýn­ing­unni má finna fjöl­breytt verk, allt frá litl­um vatns­lita­mynd­um, tex­tíl­verk­um, mál­verk­um til lampa. Gert er ráð fyr­ir að sýn­ing­in taki breyt­ing­um með­an á henni stend­ur, þeg­ar verkin á veggj­un­um fá nýja eig­end­ur og önn­ur koma í þeirra stað.

Er þetta í fyrsta skiptið sem Listasalur Mosfellsbæjar efnir til í jóla-sýningar, líkt og aðrir sýningarsalir eins og Ásmundasalur. Allur ágóði af sölu verka renna beint til listamanna.

Laugardaginn 14. desember er boðið upp á listamannaspjall þar sem listamenn hitta hver annan og aðra gesti í jóla-gleði milli kl 14-15:30.

Jóla­lista­mark­að­ur­inn stend­ur til og með 20. des­em­ber og er op­inn alla virka daga frá kl. 9-18 og 12-16 á laug­ar­dög­um.

Lista­sal­ur Mos­fells­bæj­ar er stað­sett­ur inn af Bóka­safni Mos­fells­bæj­ar í Kjarna, Þver­holti 2.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page