top of page

BÆJARLISTAMAÐUR MOSFELLSBÆJAR 2024

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. september 2024

BÆJARLISTAMAÐUR MOSFELLSBÆJAR 2024

Á sérstakri hátíðardagskrá við setningu bæjarhátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ fimmtudaginn 29. ágúst var leirlistakonan Þóra Sigurþórsdóttir útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2024.

Menningar- og lýðræðisnefnd Mosfellsbæjar sér um val bæjarlistamanns ár hvert og veitti Hrafnhildur Gísladóttir formaður nefndarinnar leirlistakonunni Þóru Sigurbjörnsdóttur verðlaunagrip eftir listakonuna Ingu Elínu ásamt viðurkenningarfé sem fylgir nafnbótinni.

Þóra Sigurþórsdóttir stundaði nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur og lauk prófi frá leirlistardeild Myndlistar- og handíðaskóla Íslands árið 1989. Að loknu námi opnaði hún vinnustofu í Álafosskvos og tók mikinn þátt í því fjölskrúðuga listalífi sem blómgaðist næstu árin í kvosinni. Margir listamenn voru þar með opnar vinnustofur, tóku á móti gestum og héldu samsýningar á staðnum. Þóra vinnur jafnt nytjahluti sem skúlptúra og nýtir ásamt leir og járni annan efnivið í listsköpun sinni, til dæmis hrosshár og kindahorn.

Þóra hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Hún er búsett í Mosfellsbæ og starfrækir vinnustofu að Hvirfli í Mosfellsdal.

Þóra hefur verið framúrskarandi í leirlist hér á landi síðustu áratugi og því vel að heiðrinum komin.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page