Árin á milli: Laimonas Dom Baranauskas opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
fimmtudagur, 7. nóvember 2024
Árin á milli: Laimonas Dom Baranauskas opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Árin á milli" er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur fimmtudaginn 7. nóvember kl. 16. Á sýningunni eru ljósmyndir eftir Laimonas Dom Baranauskas. Öll velkomin og frítt inn!
Sú hugmynd um að fegurð sé einungis bundin við ungt fólk er lífseig í samfélaginu. Markmið Laimonas Dom Baranauskas með sýningunni „Árin á milli“ er að storka þessari hugmynd með því að sýna þá fegurð og sérstöðu sem aldurinn færir fólki.
Um er að ræða portrett af fimm konum á aldrinum frá um fimmtugt til áttræðs. Til að ná fram tímalausum einkennum í mannsandlitinu tók Laimonas portrettin í svarthvítu sem undirstrikar vel svipbrigði og andlitsdrætti þeirra fyrr og nú. Hann tók eina mynd af hverri konu sem hann svo skeytti saman við gamalt stúdíó portrett af viðkomandi og þannig verður til 30 – 60 ára bil á milli tveggja portretta. Með þessari aðferð skoðar Laimonas hugtakið að eldast og það sést hvernig andlitsdrættir okkar breytast með tímanum. Með þessu móti sést einnig að eftir sem áður helst ásjóna okkar svipuð þó tímanum vindi fram.
Sýningin er opin alla daga. Lokasýningardagur er sunnudagurinn 12. janúar 2025.