
Föstudagsleiðsagnir á íslensku og ensku um sýninguna Kyrrð á Kjarvalsstöðum
Leiðsagnir um yfirlitssýninguna Kyrrð með verkum Louisu Matthíasdóttur verða haldnar föstudagana 5., 12., 19., og 26. maí á Kjarvalsstöðum – á íslensku kl. 12.30 og á ensku kl. 14.00.
Louisa Matthíasdóttir (1917-2000) er einn af fremstu listamönnum Íslendinga á sviði málaralistar. Kyrrð er viðamikil yfirlitssýning á verkum hennar þar sem kærkomið tækifæri gefst til að fá yfirsýn yfir feril listakonu sem á einstakan hátt hefur túlkað íslenskt landslag.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.