top of page

SÍM Hlöðuloft: Myndhöggvarar á Korpúlfsstöðum

lau., 12. ágú.

|

Hlöðuloftið, Korpúlfsstaðir

Í tilefni af 100 ára fæðingaafmælis Ragnars Kjartanssonar (1923-1988) myndhöggvara og þess að 50 ár eru síðan myndhöggvarar gerðu samning við Reykjavíkurborg um vinnuaðstöðu á Korpúlfsstöðum, verður haldin samsýning myndhöggvara á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum, daganna 12.-27 ágúst, 2023.

SÍM Hlöðuloft: Myndhöggvarar á Korpúlfsstöðum
SÍM Hlöðuloft: Myndhöggvarar á Korpúlfsstöðum

Dagsetning & tími

12. ágú. 2023, 16:00 – 27. ágú. 2023, 17:00

Hlöðuloftið, Korpúlfsstaðir, 112 Reykjavík, Ísland

Um viðburðinn

Í tilefni af 100 ára fæðingaafmælis Ragnars Kjartanssonar (1923-1988) myndhöggvara og þess að 50 ár eru síðan myndhöggvarar gerðu samning við Reykjavíkurborg um vinnuaðstöðu á Korpúlfsstöðum, verður haldin samsýning myndhöggvara á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum, daganna 12.-27 ágúst, 2023.

Opið alla daga nema mánudaga frá 13:00 - 18:00. Síðasti sýningardagur er 27.08.

Leiðsagnir og artist-talk á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.00.

Á sýningunni verða verk Ragnars Kjartanssonar í forgrunni ásamt verkum eftir helstu samstarfsmenn hans, þau Magnús Pálsson, Jón Gunnar Árnason, Dieter Roth, Níels Hafstein, Ragnhildi Stefánsdóttur, Ívar Valgarðsson, Þórdísi Öldu Sigurðardóttur, Ólaf Svein Gíslason, Nönnu Skúladóttur, Kristin E. Hrafnsson, Ingu S. Ragnarsdóttur og Gunnar Árnason.

Fjöldi nýrra og eldri verka verða á sýningunni sem aldrei hafa verið sýnd opinberlega áður. Allir listamennirnir á sýningunni tengdust Ragnari vináttuböndum, voru samstarfsmenn hans og nutu hvatningar hans á ýmsan hátt.

Að sýningunni standa Minningarsjóður um Ragnar Kjartansson eldri, Myndhöggvarafélagið í Reykjavík og Samband íslenskra myndlistarmanna, SÍM. Nánari upplýsingar um opnunartíma tilkynnt síðar. 

Share this event

bottom of page