
Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? Leiðsögn á Kjarvalsstöðum alla miðvikudaga
Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein?
Leiðsögn á Kjarvalsstöðum alla miðvikudaga kl. 12.30
Sérfræðingar Listasafns Reykjavíkur leiða gesti um sögulegan hluta sýningarinnar Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? á Kjarvalsstöðum. Þar er að finna málverk eftir 15 valinkunna listamenn af víðernum landsins auk ljósmynda, skissa og kvikmynda frá hálendinu.
Á sýningunni er sjónum beint að verkum listamanna sem endurspegla tengsl Íslendinga við víðerni landsins og breytilegt verðmætamat gagnvart náttúrunni. Sýningin rekur sögu hugmynda Íslendinga um víðerni landsins með augum myndlistarmanna.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.