
Einskismannsland: Fjölskylduleiðsögn í Hafnarhúsi 08.09.
Einskismannsland: Fjölskylduleiðsögn
|
Boðið er í leiðangur um hálendisverk listamanna á sýningunni Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? Skemmtileg og fjölskyldumiðuð leiðsögn þar sem börnin fá áhugaverð verkefni og tækifæri til að tjá upplifun sína á margvíslegan hátt. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur. |