
CENSORED opnar SÍM salnum á Safnanótt
Á Safnanótt föstudaginn 8. febrúar opnar TORA einkasýningu í SÍM–salnum, Hafnarstræti 16.
Opnun verður frá kl.17-19 föstudaginn 8. febrúar.
Verið hjartanlega velkomin!
Sýningin ber titilinn „CENSORED” og er sýningin innlegg inn í umræðuna um ritskoðun listarinnar og hvað teljist siðsamleg list og hvers vegna.
Sýningin verður opin alla virka daga frá kl. 10-16 í SÍM salnum, Hafnarstræti 16.
TORA útskrifaðist síðastliðið vor úr Myndlistardeild Listaháskóla Íslands.
