
Listasalur Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum
Listasalur Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um einka- og samsýningar fyrir sýningarárið 2019
Listasalur Mosfellsbæjar er fjölnota salur í hjarta Mosfellsbæjar, staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Sýningar standa að jafnaði um fimm vikur og er salurinn lánaður endurgjaldslaust.
Rafrænt umsóknareyðublað er á heimasíðu Listasalarins: www.bokmos.is/listasalur. Þar er einnig að finna ýmis hagnýt atriði um salinn sem umsækendur eru hvattir til að kynna sér. Útprentuð eyðublöð má nálgast í Bókasafni Mosfellsbæjar.
Umsóknir skulu vera vandaðar og innihalda greinargóða lýsingu á fyrirhugaðri sýningu, ferilskrá listamanns og myndir af verkum. Umsjónarmaður Listasalarins velur úr umsóknum í samstarfi við Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2018.
Listasalur Mosfellsbæjar
Kjarna
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
s: 566 6822
listasalur@mos.is
www.bokmos.is/listasalur
www.facebook.com/listasalurmoso