Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Soffía Gísladóttir sýnir á Ljósmyndasafni Reykjavíkur – Vino tinto y agua con gas

20.10 – 21.12 2011

Sýning Soffíu Gísladóttur  Vino tinto y agua con gas samanstendur af myndum sem hún tók þegar hún bjó í Madrid á Spáni árið 2008


“Ég hafði ákveðnar hugmyndir um Madríd, fannst hún spennandi. Ég hafði ferðast víða um Spán en aldrei komið til Madrídar og var með rómantíska hugmynd um borgina.”

Á þessu hálfa ári sem hún dvaldi í borginni ferðaðist hún um hana og nærliggjandi bæi með myndavélina. Nánast daglega fór hún út með það að markmiði að leita að þessari rómantísku hugmynd. Á hverju götuhorni eru tapasbarir en þeir eru, eins og alkunna er, stór hluti af menningu Spánverja.  Í íbúðarhverfunum koma nágrannar þar saman, konur og karlar, afar og ömmur og börn á öllum aldri. Soffía kom gjarnan við á tapasbar og pantaði sér „vino tinto y agua con gas“ á milli þess sem hún myndaði það sem fyrir augu bar.

Afrakstur þessara myndaferða eru innsýn inn í hversdagsleika sem Soffía upplifði – hversdagsleika sem má upphefja með rauðvínsglasi.  Það má því segja að setningin  „vino tinto y agua con gas“ nái að fanga vel þann andblæ sem ríkir á sýningunni.

Soffía Gísladóttir útskrifaðist með B.A gráðu frá grafíkdeild Listaháskóla Íslands árið 2001 og hafa verk hennar verið sýnd víða bæði á Íslandi og erlendis.
Vefsíða Soffíu er: www.soffia.net

Sýningin er opin virka daga frá 12 – 19 og um helgar frá 13 – 17.

AÐGANGUR ÓKEYPIS − VERIÐ VELKOMIN!  

Ljósmyndasafn Reykjavíkur / The Reykjavík Museum of Photography
Grófarhús, Tryggvagata 15, 6 hæð / 6th floor
101 Reykjavík, Iceland
Sími: 411-6390 / Tel: +354-411-6390
Fax: +354-411-6399
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
www.photomuseum.is