Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Muggur

TENGSLASJÓÐUR FYRIR MYNDLISTARMENN

Muggur er opin fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur rennur út 1. júní 2012 vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. ágúst - 30. nóvember 2012


Muggur er sjóður sem Menningarmálanefnd Reykjavíkur, SÍM og Myndstef stofnuðu árið 2004 og er SÍM umsjónaraðili sjóðsins.

 

Hlutverk sjóðsins er að styrkja myndlistarmenn til tímabundinnar dvalar erlendis vegna sýningar, vinnustofu eða annars sambærilegs myndlistarverkefnis. Með þeim hætti er sjóðnum ætlað að efla myndlistarstarf í Reykjavík og styrkja ímynd Reykjavíkurborgar sem framsækinnar menningarborgar á heimsvísu. Stofnun sjóðsins er liður í því að gera Reykjavíkurborg að vettvangi alþjóðlegra listastrauma.


Umsóknarfrestir fyrir Mugg 2012 eru eftirfarandi:

1. febrúar 2012 vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. apríl - 31. júlí 2012
1. júní 2012 vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. ágúst - 30. nóvember 2012
1. október 2012 vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. desember 2012- 30. mars 2013

 


 

Veittir eru styrkir til dvalar erlendis vegna:
-myndlistarsýningar
-vinnustofudvalar / þátttöku í verkstæði
-annars myndlistarverkefnis
Skilyrði er að verkefnið sé sýnilegt og að það geti að mati sjóðsstjórnar styrkt ímynd Reykjavíkur sem uppsprettu fyrir öflugt og framsækið myndlistarlíf.

 

Þeir sem þegar hafa fengið úthlutað styrk úr dvalarsjóði Muggs annars vegar og ferðasjóði Muggs hins vegar þurfa að skila greinagerð áður en sótt er um aftur.

Við bendum félagsmönnum á að hægt er að sækja um Muggs styrk fyrir dvöl í gestavinnustofum SÍM í Berlín.

Til að geta fengið úthlutun úr dvalarsjóði Muggs þarf umsækjandi að vera fullgildur skuldlaus félagi í SÍM og leggja fram tilskilin gögn er staðfesti boð um þátttöku í myndlistarviðburði eða úthlutun á aðstöðu til vinnu við myndlist. Ekki er veitt fé vegna dvalar í vinnustofum þegar fullir dvalarstyrkir fylgja úthlutun.

Vinsamlega athugið að dvalarstyrkir eru eingöngu veittir til einstaklinga.

Umsóknum skal fylgja ítarleg og greinargóð lýsing á verkefninu, upplýsingar um sýningu, sýningarstað, vinnustofusetur, verkstæði, ráðstefnu eða annað það sem við á hverju sinni. Einnig skal fylgja staðfesting ábyrgðarmanns verkefnisins í því landi sem það fer fram í, þ.e. sýningarstjóra, safnstjóra, galleríeiganda, forstöðumanns vinnustofuseturs, verkstæðis eða annars, allt eftir eðli verkefnisins. Dagsetningar verkefnisins verða að koma fram.

Styrkþegar undirgangast skuldbindingar gagnvart sjóðunum samkvæmt sérstökum samningum sem gerðir verða í kjölfar úthlutunar og kveður m.a. á um að styrkþegum beri að skila stuttri greinargerð um notkun styrksins.

Mikilvægt er að hafa umsóknina vandaða, skýra og hnitmiðaða. Lesa reglur og leiðbeiningar vel.

Rafrænt umsóknareyðublað, stofnskrá og reglur um úthlutun er að finna hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar um Mugg eru einnig veittar á skrifstofu SÍM, sim@sim.is, s. 551 1346

Einungis er hægt að fylla út rafræna umsókn sem er að finna hér að neðan, umsóknarfrestur er til miðnættis þann dag sem auglýstur er.


Muggur umsókn

Stofnskrá Muggs

Muggur reglur

Muggur greinargerð

*Til að hlaða niður skjölum fyrir Mac notendur. Haldið niðri CTRL og smellið á hlekkinn, veljið „Save Linked File As“. Þá hleðst skráin á skjáborðsmynd. Skjölin eru .doc fyrir Word.