SÍM og Reykjavíkurborg reka gestaherbergi sem ætluð er til styttri dvalar fyrir íslenska og erlenda listamenn eða einstaklinga í menningartengdum erindagjörðum. Gestaherbergin eru staðsett í SÍM húsinu, Hafnarstræti 16, í miðborg Reykjavíkur.
Húsnæðið er samtals um 100 fm og skiptist í eldhús, stofu, baðherbergi og þrjú svefnherbergi með tveimur rúmum hvert. Íbúðin er búin öllum nauðsynlegustu búsáhöldum, sængurfatnaði, handklæðum, þvottavél og sjónvarpi.
Verð fyrir nóttina í gestaherbergi SÍM er 5.000 isk nóttin fyrir einn og 7.500 isk fyrir tvo í herbergi.
Hægt er að bóka herbergi í tölvupósti á sim@sim.is og í síma 5511346.