Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Fundarsalur

Hafnarstræti    Hafnarstræti    Hafnarstræti    Hafnarstræti

Í SÍM- húsinu er fjölnota salur ætlaður fyrir fundi og aðrar uppákomur. Félagsmenn geta fengið að halda sína félagsfundi í salnum og aðra fundi er snerta hagsmunamál myndlistarmanna.

SÍM getur boðið upp á afnot af skjávarpa. Einnig er lítið bókakaffi þar sem hægt er að setjast niður og glugga í ýmsa bæklinga og listatímarit og fá sér kaffibolla.

Í hverjum mánuði sýnir nýr SÍM listamaður mánaðarins verk sín í salnum. Listamaðurinn er valinn af handahófi úr félagatali SÍM og eru því ávallt sýningar í gangi. Einnig nýtist salurinn fyrir kynningar á erlendum listamönnum sem dvelja í gestaíbúðum okkar.