AÐILDARFÉLÖG SÍM
SAMBANDSRÁÐSFULLTRÚI FÉLAGSMANNA MEÐ EINSTAKLINGSAÐILD AÐ SÍM
LEIRLISTAFÉLAG ÍSLANDS
http://leirlistafelagid.jimdo.com/
Leirlistafélag Íslands var stofnað árið 1981 af 11 leirlistamönnum en í dag eru félagar um 50. Hlutverk félagsins felst meðal annnars í því að kynna leirlistina og stuðla að sýningarhaldi.
Félagið stóð m.a. fyrir 15 ára afmælissýningar í Hafnarborg 1996, tók þátt í dagskrá Reykjavíkur menningarborgar Evrópu árið 2000 undir heitinu Logandi list og 12 jan. – 3. febrúar 2002 stóð félagið fyrir sýningu í Listasafni Kópavogs m.a. í tilefni 20 ára afmæli félagsins.
Í tilefni af 20 ára afmæli félagsins var einnig gefin út bók sem ber yfirskriftina Íslensk keramik 2002. Í henni eru upplýsingar um félagsmenn með litprentuðum myndum af verkum þeirra.
Leirlistafélagið er aðili að Sambandi íslenskra myndlistarmanna og Form Ísland, samtaka hönnuða á Íslandi.
Félagsgjald 2009 var kr. 8.000.-
Stjórn
Formaður: Kolbrún Sigurðardóttir, kolsi@hive.is
Ritari: Sigríður Helga Olgeirsdóttir
Gjaldkeri: Bjarni Sigurðsson
Varamaður: Anna S. Hróðmarsdóttir
Inntökuskilyrði Leirlistafélagsins
Leirlistafélagið umsóknareyðublað
FÍM, Félag íslenskra myndlistarmanna
Stofnað árið 1928
Stjórn 2002-2004:
Valgarður Gunnarssson, formaður, sími 552 4678, netfang: valgun@simnet.is
Gunnhildur Björnsdóttir, ritari, sími 552 8073, netfang: gunnh@lhi.is
Ásdís Kalman, gjaldkeri, s. 551 8261
Ingunn Eydal, meðstjórnandi
Bryndís Jónsdóttir, meðstjórnandi
Sýningarnefnd:
Sigurbjörg Jóhannesdóttir sibba@mms.is
FÍM inntökuskilyrði
Félag íslenskra samtímaljósmyndara – FÍSL
www.fisl.is
Fomaður: Pétur Thomsen
Gjaldkeri: Katrín Elvarsdóttir
Ritari: Bragi Þ. Jósefsson
Stjórn: Pétur Thomsen
Stjórn: Inga Sólveig Friðjónsdóttir
Félagar: Bára Kristinsdóttir
Einar Falur Ingólfsson
Þórdís Ágústsdóttir
Lög Félags íslenskra samtímaljósmyndara
MHR – MYNDHÖGGVARAFÉLAGIÐ Í REYKJAVÍK
Nýlendugötu 15 , 1348 pósthólf, 121 Reykjavík
s. 562 4887 fax 562 4885
e-mail: sculpture@sculpture.is
http://www.sculpture.is/
MHR var stofnað 17. ágúst 1972 og starfar að hagsmunamálum félagsmanna sem eru helst þessi:
- Að standa vörð um hagsmuni félagsmanna og vinna að bættum kjörum þeim til handa
- Að kynna myndlist félagsmanna sem víðast, s.s. með sýningum innanlands sem utan og með upplýsingamiðlun til stofnana, innlendra sem erlendra
- Að stuðla að bættum starfsskilyrðum félagsmanna t.d. í vinnuhúsnæði félagsins og koma á samvinnu við erlenda aðila sem reka gestaíbúðir og vinnustofur
- Að miðla þekkingu og hagnýtum aðferðum til félagsmanna og efna til fyrirlestra og námskeiðahalds.
- Að gefa út vandaðar sýningarbækur eða safnrit, félagsmálamöppur og upplýsingarit eftir því sem fjárhagurleyfir- Að vera til ráðuneytis þeim félagsmönnum sem gera þurfa samninga vegna stórra verkefna, t.d. skreytinga í opinberum byggingum o.fl.
Að Nýlendugötu eru 11 litlar 8 – 25 m2 vinnustofur sem leigðar eru félagsmönnum.
Í tilefni 25 ára afmæli félagsins var sett upp sýningarþrenna.
Fyrsta sýningin var Strandlengjan sem sett var upp vorið 1998, félagsmenn settu upp verk sín meðfram suðurströnd Reykjavíkur frá Seltjarnarnesi að Fossvogi.
Sumarið 1999 var sett upp sýningin FIRMA 99 og árið 2000 er síðan síðasti hluti sýningarþrennunnar: Strandlengjan 2000. Sú sýning er á norðurströnd Reykjavíkur, meðfram Sæbrautinni, frá Reykjavíkurhöfn og yfir mót Kringlumýrarbraut.
Vorið 2000 gaf MHR út kynningarrit um félagsmenn.
Stjórn Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík:
Karlotta Blöndal, formaður
Sara Björnsdóttir, gjaldkeri
Haraldur Jónsson, ritari
Ásmundur Ásmundsson
Helgi Þórsson
Sýningarnefnd:
Stjórn MHR
ÍSLENSK GRAFÍK
Pósthólf 857, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík
s. 552 2866 Fax 552 2866
islenskgrafik@gmail.com www.islenskgrafik.is
Íslensk grafík var stofnað árið 1954 af Jóni Engilberts, Jóni Þorleifssyni, Veturliða Gunnarssyni, Jóhannesi Jóhannessyni, Benedikt Gunnarssyni, Kjartani Guðjónssyni og Hafsteini Guðmundssyni. Starfsemin lagðist niður um tíma og var félagið var endurreist árið 1969 og átti því 30 ára afmæli vorið 1999 og var í því tilefni mikil grafíksýning í Gerðarsafni í Kópavogi.
Markmið félagsins er að vera hagsmunafélag íslenskra grafíklistamanna, að stuðla að framgangi grafíklistar á Íslandi, að gangast fyrir samsýningum félagsmanna, að kynna erlenda grafík á Íslandi svo og íslenska grafík á erlendum vettvangi. Íslensk grafík er aðildarfélag SÍM
Félagar eru 67. Stjórn félagsins er með aðstöðu á verkstæði félagsins að Tryggvagötu 17 en ekki á ákveðnum tímum og því betra að reyna að ná til stjórnarmanna í gegnum símann eða bréflega.
Á aðalfundi félagsins 28. maí 2003 var samþykkti að til prufu verði verkstæðishópur settur í gang til eins árs undir forustu Valgerðar Hauksdóttur, hlutverk hans er að skoða og skipuleggja framtíðarhugmyndir verkstæðismála.
Félagið rekur vinnustofur og verkstæði í Hafnarhúsinu í Tryggvagötu og einnig sýningarsal og skúffugallerí.
Íslensk grafík opnaði fyrsta grafíkverkstæði félagsins árið 1995 en árið 1999 flutti starfsemin í núverandi húsnæði að Tryggvagötu 17. Jafnframt var sýningarsalur félagsis opnaður í ágúst 1999 og skúffugallerí í húsnæði félagsins í desember sama ár.
Grafíkverkstæði félagsins er í Hafnarhúsinu í Tryggvagötu. Verkstæðið er 300 fm. með vinnuaðstöðu í flestar aðferðir í grafík og þar að auki innrömmunaraðstöðu og myrkraherbergi. Þessi aðstaða er leigð út til félagsmanna og annarra sem hafa áhuga á að vinna í grafík. Í núverandi húsnæði félagsins er einnig ca. 30 fm. sýningaraðstaða. Þessi sýningaraðstaða er ætluð jafnt ísl. sem erlendum myndlistarmönnum til sýningarhalds á verkum unnin á pappír. Tveir starfsmenn eru við alla virka daga frá 13.00 – 18.00 á verkstæðinu.
Gjaldskrá verkstæðisins er skipt í þrjá hluta:
A) fyrir félagsmenn,
B) fyrir aðra listamenn og nema, með þekkingu á grafík,
C) fyrir þá listamenn sem þurfa tæknilega aðstoð.
Íslensk grafík er í sambandi og samvinnu við marga aðila t.d. má nefna norrænu grafíkfagfélögin. Norræni grafíkþríæringurinn er samvinnuverkefni félagsins og Norræna hússins. Sýningin er skipulögð á þann veg að valinn er einn myndlistarmaður frá hverju norðurlandanna og einn til viðbótar frá e-u öðru landi.
Íslensk grafík er aðili að Artstudionet en það eru samtök vinnustofa um allan heim sjá: http://www.artstudiosnet.org
Félagið hefur einnig um árabil tekið þátt fjölda árlegra alþjóðlegra sýninga svo sem í Krakow í Póllandi og Ljubljana í Sloveniu Edmonton í Kanada og fl.
Um þessar mundir er unnið að útgáfu margmiðlunardisks um félagið. Þar verða upplýsingar um nýju aðstöðuna, sögu félagsins, félagsmenn og sýnishorn af verkum þeirra.
Stjórn 2011-2012:
Soffía Sæmundsdóttir formaður
Þórdís Elín Jóelsdóttir gjaldkeri
Alda Rós Cartwright ritari
Elísabet Stefánsdóttir meðstjórnandi
Sigrún Ögmundsdóttir meðstjórnandi
Grafíkfélagið inntökuskilyrði
Umsóknareyðublað
TEXTÍLFÉLAGIÐ
Ásdís Birgisdóttir, formaður
www.tex.is
Rætur þráðlistar liggja djúpt í islenskri menningu. Öld fram af öld hafa íslendingar unnið með þráð og voð. Tímarnir hafa breyst frá því að lífsnauðsynlegt var að kunna til verka við þráðagerð, vefnað og prjón. Handverkið hefur þó lifað með þjóðinni og í dag eru það einkum konur sem vinna myndverk sem byggja á handverkshefðinni. Enn spinna þær þráð og vinna hann í prjóni, útsaumi og vefnaði. Það var neyðin sem kenndi naktri konu að spinna fyrr á öldum en í dag er það forvitnin, þekkingarþorstinn og sköpunarþörfin sem hvetur þær áfram.
Árið 1974 stofnuðu ellefu myndlistarkonur Textílfélagið. Stofnendurnir áttu það sameiginlegt að nota textílefni í listsköpun sína. Markmið þeirra var að kynna listgreinina og efla hag sinn með samheldni.
Textílfélagið hefur haldið stórar samsýningar á fimm ára fresti og einnig hafa minni hópar innan félagsins staðið saman að sýningum. Ennfremur hefur félagsmönnum boðist að taka þátt í alþjóðlegum sýningum erlendis.
Textílfélagið er aðili að Form Ísland og samtökum hönnuða.
Félagar hafa farið ýmsar leiðir í listsköpun, bæði í hönnun og frjálsri myndlist, ofið, prjónað, saumað, þrykkt, þæft, unnið pappír, hannað fatnað og annan textíl.
Framtíðin er óskrifað blað, en markmiðið er að koma á fót textílverkstæði fyrir félagsmenn og vinna að skipulagningu endurmenntunar í faginu, en félagið hefur þegar staðið að endurmenntunarnámskeiðum fyrir félagsmenn. Ennfremur að kynna textíllist jafnt innanlands sem utan og efla hag félagsins á allan hátt.
Félagsmenn eru nú um 50 talsins og þar af fjórir heiðursfélagar.
Umsóknir um inngöngu í félagið þurfa að berast stjórn félagsins í síðasta lagi 30.apríl.
Stjórn Textílfélagsins 2009 – 2010
Ásdís Birgisdóttir, formaður, asdisbirgis(hjá)simnet.is
Anna Guðmundsdóttir, anna(hjá)fakta.is
Björg Pjetursdóttir, meðstjórnandi, bjorg.pje(hjá)gmail.com
Bryndís Bolladóttir, meðstjórnandi, bbolla(hjá)simnet.is
Brynja Emilsdóttir, ritari, brynjaem(hjá)gmail.com
Sýningarnefnd 2010:
Steinunn Björg Helgadóttir,
Anna Guðmundsdóttir,
Sigrún Shanko,
Þóra Björk Schram.
Textílfélagið inntökuskilyrði
Textílfélagið umsóknareyðublað
Myndlistarfélagið
http://mynd.blog.is/blog/mynd/
Myndlistarfélagið var stofnað þann 26. janúar 2008 á Akureyri. Stofnfélagar eru 60 talsins.
Tilgangur og markmið Myndlistarfélagsins eru:
Að efla samtök myndlistarmanna og vera málsvari þeirra.
Að bæta kjör og starfsgrundvöll myndlistarmanna, gæta hagsmuna þeirra.
Að efla umræðu um myndlist og auka þekkingu og fræðslu um myndlist.
Að auka myndlist á Norðurlandi sérstaklega og koma á samstarfi við opinbera aðila á svæðinu.
Að standa fyrir sýningum á verkum félaga Myndlistarfélagsins.
Að koma á samvinnu við listamenn, erlendis sem og hér á landi.
Lög félagsins voru samþykkt og einnig ályktun um að efla beri starfslaun Akureyrarbæjar til listamanna. Umræður urðu um starfsaðstöðu myndlistarmanna og lagt til að gerð verði könnun á stöðu myndlistarmanna á svæðinu. Fjölmargar hugmyndir komu fram um starfsemi félagsins og uppbyggilegar tillögur.
Stjórn félagsins 2010
Þórarinn Blöndal gjaldkeri thorarinnb@simnet.is
Joris Rademaker varaformaður gudrunpalina@hotmail.com
Guðrún Pálína meðstjórnandi gudrunpalina@hotmail.com
Brynhildur Kristinsdóttir ritari bilda@simnet.is
Laufey Margrét Pálsdóttir varamaður laufeym@internet.is
Helgi Vilberg Hermannson varamaður helgi@myndak.is