Reglur
Reglur um dvöl í gestavinnustofu SÍM í Berlín
☑ Gestir koma á skrifstofu SÍM að sækja lykla fyrir brottför og greiða 20.000 kr. í peningum í lykla- og þrifgjald. Gestir fá endurgreitt þegar þeir skila lyklum aftur á skrifstofu SÍM, svo lengi sem þeir hafa skilað íbúðinni hreinni.
☑ Rúmföt og handklæði þurfa listamenn að koma með sjálfir. Vinsamlegast skiljið ekki eftir lín við brottför.
☑ Þrif á meðan dvöl stendur og þrif í lok dvalar sér gestur um. Íbúðirnar þurfa að vera tilbúnar fyrir nýja gesti í lok dvalar.
☑ Hreinlætisvörur og klósettpappír þurfa listamenn að útvega sjálfir.
☑ Áður en vinnustofan er yfirgefin í lok dvalar, þarf að:
• skúra og þrífa vel öll gólf í íbúðinni (herbergi, vinnustofu, eldhús, gang, salerni og sturtu)
• ryksuga laus teppi og mottur (ryksugan en geymd á 1. hæð í Galleríinu)
• þurrka af hillum, borðum og gluggakistum,
• þrífa öll hreinlætistæki,
• þvo upp og henda rusli,
• tæma ísskáp og þrífa vel ( muna eftir frystihólfinu) og fjarlægja allt matarkyns. Við brottför skal stilla ísskáp á 1 og passa að hafa ísskápinn ekki óþarflega hátt stilltan meðan á dvöl stendur.
☑ Vinsamlegast skiljið ekki eftir listmuni eða áhöld í vinnustofunni.
☑ Ekki er leyfilegt að vinna með eiturefni svo sem nítró, bensín og benzin. Farið varlega í notkun úðabrúsa.
☑ Reykingar eru ekki leyfðar innanhúss, sýnum tillitssemi – skiltið um að reykingar séu bannaðar er ekki bara til skrauts. Hægt er að reykja í portinu og út á svölum fyrir þá sem dvelja í Heklu.
☑ Vinsamlegast látið skrifstofu SÍM vita ef húsnæðið þarfnast lagfæringar og einnig ef eitthhvað skemmist meðan á dvöl stendur.
☑ Vinsamlegast hugið að orkunotkun ykkar. Það er mjög mikilvægt að fara sparlega með vatn og rafmagn. Slökkva alltaf ljós þegar herbergi er yfirgefið.
☑ Flokkunartunnur eru við húsið og því er nauðsynlegt að flokka rusl. Almennt heimilissorp fer í svartar tunnur, pappír í bláa tunnu og lífrænn úrgangur í sérstaklega merkta tunnu. Einnig er sérstök umbúðatunna fyrir plast og fleira.
☑ Á 5. hæðinni má ekki hreyfa við ofnunum. Þeir skulu alltaf stilltir á 5.
Hitanum á ofnunum er stjórnað með Termostatinu sem er í öðru herberginu.
Termóstatið skal síðan stillt 15°C við brottför (yfir vetrartímann)
Yfir sumartímann er alveg slökkt á Termostatinu.
Þó þarf alltaf að slökkva á ofninum í sturtuherberginu, þar sem þar er rafmagnsofn.
☑ Við brottför úr gallerí eða kjallara rýminu skal stilla ofna á 1 yfir vetrartímann. Yfir sumartímann er alveg
slökkt á ofnunum.
☑ Ef ætlunin er að vera með opna vinnustofu í kjallaranum eða í gallerí rýminu þarf að setja upp tilkynningu við hliðina á póstkössunum með viku fyrirvara. Þið mættuð bjóða nágrönnunum á opnanir.
☑ Tökum tillit hvert til annars. Íbúðirnar eru í fjölbýlishúsi og er stutt á milli granna. Háreysti og umgengni seint að kvöldi eða að næturlagi getur valdið öðrum ónæði.