Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Askja og Hekla 4. hæð

Á 4 hæð eru tvö 23 m2 herbergi, Askja og Hekla. Hekla er með svölum og sér inngangi af stigagangi. Sá sem er í því herbergi þarf að fara inn í íbúðina af stigaganginum, þar sem er sameiginlegt eldhús, wc og sturta. Askja  er ekki með svalir en hefur í staðinn beinan aðgang að eldhúsi, sturtu og wc. Gott pláss er á ganginum fyrir skó, yfirhafnir og ferðatöskur. Þessi tvö herbergi deila eldhúsi, sturtu og salerni.

Leiðbeiningar:

Við komu:

Í Öskju er hitamælir, gott er stilla hann á 20° við komu og lækka hann aftur aðeins í 18° við brottför.

Eldhús:

Í eldhúsinu er gaseldavél, til að kveikja á hellu þarf að snúa takka og halda inni, kveikja strax á kveikjara og halda takkanum inni í smá stund. Muna svo að slökkva vel á öllum tökkum.

Leiga á mánuði er 450€ fyrir einn og  300€ í 2 vikur fyrir einn
Auka gjald greiðist ef auka manneskja bætist við, 5.000 kr. fyrir 1 viku, 7.000 kr. fyrir 2 vikur, 10.000 kr. fyrir mánuð