Lestakerfið og kort
Almenningssamgöngur í Berlín

- Skrifstofur
Sími: 030 2974 3333
Opið: Mánudaga til föstudaga 06:00-22:00 og um helgar 07:00-21:00 - Kort af BVG kerfinu í Berlin: Smelltu hér
- Tímatöflur og leiðir: Smelltu hér

- U-Bahn stöðvar eru merktar með stafnum U í hvítu með bláum bakrunni.
- S-Bahn stöðvar eru merktar með hringlóttu grænu merki með stafnum S í miðjunni í hvítu.
- Bus and tram stops eru merktar með gulum hring, stafnum H í grænu og hvítum bakrunni.
Miðar og gjaldsvæði
Borginni er skipti í þrjú svæði: A, B og C.
- Hægt er að kaupa miða með peningum eða kredit korti í sjálfssölunum sem eru öllum S- og U- Bahn stöðvunum og með smámynt í sjálfsölum á Tram stöðvum. Borgað er í peningum um borð í strætó beint til bílstjórans.
- Stakur miði á svæði AB, BC eða ABC þarf að stimpla í sérstakri vél og gildir stakur miði í tvær klukkustundir.
- Dagpassi (Tageskarte) er í gildi allan daginn til kl 03:00 um nóttina.
- Styttri ferðir eða (Kurzstrecke) gildir þrisvar í S- og U-Bahn og sex skipti í strætó og tram.
- Hópferðamiði eða (Kleingruppenticket) gerir allt að fimm aðilum að ferðast einn heilan dag til 03:00 um nóttina.
- Sjö daga passinn (7-Tages-karte) og mánaðarkortið (Monatskarte) sem og árskortið (Jahreskarte) veita aðgang að öllu samgöngukerfinu í þann tíma sem kortið er í gildi. Þessir miðar leyfa einnig allt að þremur börnum frá 6 – 13 ára eða einum fullorðnum að ferðast frítt milli 20:00 og 03:00 í vikunni og allann daginn um helgar og á þjóðhátíðardögum.
- Afsláttarkort eru í boði fyrir börn, stúdenta og atvinnulausa gegn staðfestingu.
- Ef ferðast er með hjól þarf að hafa sérstakan hjólamiða (Fahrradkarte)
Athugið að það er mikilvægt að staðfesta miðann þegar hann er notaður í fyrsta skipti. Sérstakir miðaverðir ferðast um í lestunum óeinkennisklæddir og athuga miða. Ef þú ferðast án miða eða gleymir að staðfesta miðann þinn geturðu fengið háa sekt. (Schwarzfahren).
Strætó
Það ganga um 150 dag- og 54 nætur strætó í Berlín.
Sýna þarf miða eða kaupa hann af bílstjóranum og staðfesta miðann (validate) Dagsferðirnar í strætó byrja kl 05:00 og ganga fram að miðnætti, næturferðirnar ganga svo alla nóttina.
S- og U- Bahn
Lestakerfið skiptist í S- og U- Bahn línur. Lestarstöðvarnar eru samliggjandi og því auðvelt að skipta úr S-Bahn í U-Bahn. Bæði kerfin eru ofan- og neðanjarðar. Kerfið er starfrækt bæði af S-Bahn Berlin og Berlin Transport Authority (BVG) Númerin eru til dæmis: S1, S3, S42 or U2, U8. Lestirnar koma á 5 – 10 mín fresti og oft er hægt að taka fleiri en eina lest. Næturstrætó kemur í staðinn fyrir lestirnar frá 01:00 og 05:00.
Smelltu hér fyrir miðaverð, Dag- viku- mánaðar og árspassa.
U- og S-Bahn lestarnar stoppa á hverri stöð. Stundum þarf að ýta á takka til að opna dyrnar ef þær opnast ekki strax sjálfkrafa.
Tram