Berlín er höfuðborg Þýskalands og einnig stærsta borg þess með tæpar 3,44 milljónir íbúa en flestir hafa íbúarnir verið 4,3 milljónir, fyrir síðari heimsstyrjöld. Borgin er einnig sú næstfjölmennasta innan Evrópusambandsins á eftir London ef miðað er við opinber borgarmörk. Berlín stendur við árnar Spree og Havel í norðaustanverðu Þýskalandi og er umlukt sambandslandinu Brandenborg, en borgin sjálf er sjálfstætt sambandsland. (Wikipedia)
Sendiráð Íslands í Þýskalandi er staðsett í Tiergarten á sendiráðssvæði Norðurlandanna. Norðurlöndin eru með sameiginlega móttöku. Þar er að finna sýninga- og kvikmyndasal sem sendiráðin nota öll saman og til skiptis undir menningarviðburði eins og kvikmyndir og myndlistasýningar svo eitthvað sé nefnt.