1. gr. Útboðsaðili
Samkeppni getur verið á vegum einstaklinga eða lögaðila. Um skipulag og framkvæmd samkeppna skal hafa samráð við stjórn SÍM.
2. gr. Tilgangur samkeppni
Tilgangur samkeppni er að leiða í ljós tillögu að verki sem best er fallin til útfærslu og framkvæmdar.
3. gr. Tilhögun samkeppni
Samkeppni getur verið almenn eða lokuð eftir eðli og umfangi verkefnisins.
Almenn samkeppni er opin öllum myndlistarmönnum sbr. 4 gr. Í almennri samkeppni er gert ráð fyrir að þátttakendur skili inn frumdrögum ásamt stuttri lýsingu á hugmynd. Að lokinni slíkri samkeppni getur dómnefnd valið einn eða fleiri höfunda til þátttöku í lokaðri samkeppni svo fremi að slíkt sé tilgreint í keppnislýsingu.
Lokuð samkeppni er samkeppni fárra nafngreindra myndlistarmanna sem valdir hafa verið af dómnefnd, með eða án forvals. Í lokaðri samkeppni er gert ráð fyrir að þátttakendur skili inn fullmótaðri tillögu að verki ásamt ítarlegri lýsingu á hugmynd. Lokuð samkeppni án forvals fer þannig fram að dómnefnd velur ákveðinn fjölda myndlistarmanna til þess að vinna tillögu að verki gegn ákveðinni þóknun.
Lokuð samkeppni með forvali fer þannig fram að auglýst er eftir listamönnum til þátttöku í forvali. Sérstök forvalsdómnefnd velur þá úr innsendum umsóknum ákveðinn fjölda myndlistarmanna til þess að vinna tillögu að verki gegn ákveðinni þóknun.
4. gr. Þátttakendur
Í keppnislýsingu skal koma fram hverjir rétt hafi til þátttöku. Rétt til þátttöku hafa myndlistarmenn sem eru íslenskir ríkisborgarar, erlendir ríkisborgarar með lögheimili og atvinnuleyfi á Íslandi, listamenn á Norðurlöndum, svo og listamenn í öðrum löndum þar sem íslenskir listamenn njóta sambærilegra réttinda. Hópi eða lögaðila er því aðeins heimil þátttaka að einstaklingur sem sjálfur á þátttökurétt sé ábyrgur fyrir þátttöku hópsins eða lögaðilans.
Þátttaka er óheimil dómnefndarmönnum, svo og þeim sem dómnefnd leitar til um aðstoð eða sérfræðilegt álit. Þyki vafi leika á um þátttökurétt skal leita umsagnar stjórnar SÍM.
5. gr. Keppnislýsing
Útboðsaðili skal semja keppnislýsingu þar sem gerð er grein fyrir viðfangsefninu og kveðið á um réttindi og skyldur útboðsaðila, dómnefndar, þátttakenda og SÍM.
Æskilegt er að keppnislýsing greinist í meginkafla, boð til samkeppni, upplýsingar um útboðsaðila (nafn o.fl.), tilhögun samkeppni, tilgang og viðfangsefni. Gera þarf skýra grein fyrir þeim forsendum sem miðað skal við og skal markmiði, tímasetningum og innihaldi verkefnis vera vel og ítarlega lýst.
Útboðsaðili getur leitað til skrifstofu SÍM eða annarra sérfræðinga eftir aðstoð við gerð keppnislýsingar.
Keppnislýsing skal vera yfirfarin og samþykkt af trúnarðarmanni SÍM og stjórn SÍM.
6. gr. Dómnefnd
Þegar samkeppnislýsing liggur fyrir skal skipa dómnefnd og skal fjöldi dómnefndarmanna ávallt standa á oddatölu. Í þriggja manna dómnefnd skal einn dómnefndarmaður tilnefndur af SÍM. Í stærri dómnefndum skulu tveir dómnefndarmanna hið fæsta tilnefndir af stjórn SÍM. Aðra tilnefnir útboðsaðili. Dómnefndarmenn kjósa formann úr sínum hópi. Formaður boðar fundi, sér um fundarstjórn og heldur utan um niðurstöður funda. Hver dómnefndarmaður fer með eitt atkvæði. Til að ákvörðun dómnefndar sé gild þarf samþykki meiri hluta hennar. Falli atkvæði jafnt sker atkvæði formanns úr.
Þegar um er að ræða samkeppni með forvali skal skipa tvær dómnefndir og skal önnur annast forvalið en hin lokaða hluta samkeppninnar.
Ef dómnefndarmaður er nátengdur þátttakanda vegna vensla eða samstarfs skal kalla til varamann þegar viðkomandi tillaga er skoðuð og metin. Í lokaðri samkeppni skal dómnefndarmaður víkja og annar skipaður ef í ljós kemur að einn eða fleiri þáttakenda er vensla- eða samstarfsmaður hans.
7. gr. Trúnaðarmaður
Stjórn SÍM skipar trúnaðarmann sem með þagnarskyldu annast samskipti útboðsaðila, dómnefndar og þátttakenda. Trúnaðarmanni ber að gæta fyllsta hlutleysis í öllum störfum sínum og hann getur ekki tekið að sér önnur störf fyrir aðila viðkomandi samkeppni.
8. gr. Nafnleynd
Samkeppni skal ávallt fara fram með nafnleynd keppenda þar til dómnefnd hefur lokið störfum. Í þessu skyni skulu tillögur einkenndar með dulnefni eða talnaröð og skal nafnmiði fylgja í innsigluðu umslagi merktu á sama hátt. Á nafnmiða skal tilgreina hver eigi höfundarrétt að tillögunni.
9. gr. Kostnaður
Útboðsaðili greiðir allan kostnað af framkvæmd samkeppni. Verðlaunafjárhæð, þátttökuþóknun og þóknun SÍM skal vera í samræmi við viðmiðunargjaldskrá SÍM.
Í almennri samkeppni fær dómnefnd til ráðstöfunar verðlaunafjárhæð sem nota skal til að greiða verðlaun og kaupa tillögur. Óheimilt er að skipta verðlaunum nema útboðsaðili hafi áskilið sér rétt til þess í keppnisgögnum og auglýsingu.
Í lokaðri samkeppni skal hverjum hinna boðnu þátttakenda ákveðin sama þóknun. Að auki kann að vera um verðlaunafjárhæð að ræða sem dómnefnd þá úthlutar.
Frávik frá verðlaunafjárhæð og þóknun sem fram kemur í keppnislýsingu eru óheimil nema fyrir liggi samþykki stjórnar SÍM.
Tillögur skulu tryggðar af útboðsaðila.
10. gr. Dómnefndarstarf
Dómnefndarstarf er trúnaðarstarf og er dómnefnd bundin þagnarskyldu um allt sem varðar samkeppnina. Að jafnaði skulu dómnefndarmenn einir sitja fundi dómnefndar en dómnefnd er heimilt að kalla til sín ritara, sérfræðilega ráðunauta, svo og trúnaðarmann ef þurfa þykir þegar tillögur eru metnar. Eru þeir einnig bundnir þagnarskyldu um allt sem varðar samkeppnina. Dómnefnd ber að gæta fagmennsku, sanngirni og jafnræðis í umfjöllun sinni. Bóka skal allar samþykktir og sératkvæði.
Dómnefnd skal vísa þeim tillögum frá sem ekki hefur verið skilað á tilsettum tíma, ekki fullnægja skilyrðum keppnislýsingar um nafnleynd eða í vantar veigamikla þætti sem ætlast er til að gerð sé grein fyrir.
Gögn umfram þau sem um er beðið í keppnislýsingu koma ekki til mats af hálfu dómnefndar.
Tillögur sem í mikilvægum atriðum víkja frá veigamiklum kröfum í keppnislýsingu má kaupa en ekki verðlauna.
11. gr. Álit dómnefndar
Dómnefnd skal fjalla um allar tillögur sem fullnægja skilyrðum keppnislýsingar. Ef forsendur eru til þess skal dómnefnd mæla með ákveðinni tillögu til framkvæmdar eða frekari úrvinnslu og koma þá jafnt verðlaunaðar sem keyptar tillögur til álita.
Dómnefnd skal skila skriflegri niðurstöðu og skal úrskurður hennar vera rökstuddur. Þar skal koma fram almenn umsögn sem tekur mið af fagurfræðilegum, tæknilegum og fjárhagslegum atriðum, umhverfisþáttum o.fl. Dómnefnd skal einnig skila rökstuddu áliti um úthlutun verðlaunafjárins og kaup á tillögu.
12. gr. Opnun nafnmiðaumslaga
Nafnmiðaumslögin má ekki opna fyrr en niðurstaða er fengin og dómnefnd hefur undirritað álitsgerð sína. Leiði nafnmiði í ljós að höfundur hafi samkvæmt keppnislýsingu ekki átt rétt til þátttöku í keppninni kemur hann ekki til álita þegar verðlaunum eða viðurkenningu er úthlutað.
13. gr. Sýning
Útboðsaðila ber að kynna niðurstöðu samkeppni opinberlega. Þegar úrslit samkeppni hafa verið birt skal útboðsaðili hafa allar tillögurnar aðgengilegar eða til sýnis almenningi eigi skemur en 8 daga. Á sýningu skal álitsgerð dómnefndar vera tiltæk ásamt fylgigögnum. Stjórn SÍM er heimilt að halda sýningu á tillögunum. Samkeppnistillögur skulu sendar höfundum að sýningu lokinni, þeim að kostnaðarlausu.
14. gr. Birting
Opinber birting tillagnanna í tengslum við samkeppnina skal vera frjáls. Geta skal nafns höfundar þegar það er kunnugt.
15. gr. Eignarréttur
Tillöguhöfundar eiga allan eignarrétt þar með talinn höfundarrétt og notkunarrétt að tillögum sínum.
Útboðsaðili getur keypt tillögu (þ.e. efnislegan eignarrétt að verðlaunatillögum og öðrum tillögum) nái hann samkomulagi um verð við höfund. Höfundi er heimilt að skipta á frumriti tillögu og samriti eða annarri endurgerð.
Um sex máða skeið eftir lyktir samkeppni, eða annan tíma sem ákveðinn kann að vera í keppnislýsingu, á útboðsaðili forgang að notkunarrétti að verðlaunuðum og keyptum tillögum.
Útboðsaðili hefur rétt til þess að nota heildarniðurstöður samkeppninnar við frekari vinnu að samkeppnisverkefninu, enda brjóti það ekki í bága við gildandi íslenska löggjöf um höfundarétt.
16. gr. Samningur
Þegar fyrir liggur að ákveðin tillaga verður framkvæmd gera útboðsaðili og höfundur tillögunnar með sér samning um áframhaldandi framvindu verkefnisins. Sé samningur ekki gerður innan settra tímamarka, sbr. 15. gr. er tillöguhöfundi frjálst að ráðstafa tillögu sinni að vild.
17. gr. Vinna að verkefni að lokinni samkeppni
Hafi höfundur tillögu sem dómnefnd hefur mælt með til frekari úrvinnslu eða framkvæmdar ekki nægileg föng eða aðstæður til þess að annast framhaldsvinnu í tengslum við samkeppnistillöguna, skal honum falið að vinna það í samvinnu við annan fagmann sem hann velur í samráði við útboðsaðila. Dómnefndarmanni og trúnaðarmanni er óheimilt að hafa milligöngu þar um eða taka verkefnið að sér.
Telji útboðsaðili að samkeppni lokinni að sérstakar ástæður séu til að hafa annan hátt á en dómnefnd mælti með kemur það til greina að höfðu samráði við stjórn SÍM. Með sérstökum ástæðum er átt við aðstæður eða atriði sem dómnefnd var ókunnugt um er hún kvað upp úrskurð sinn.
18. gr. Ágreiningur
Rísi ágreiningur milli aðila skal leitast við að ná sáttum fyrir tilstilli sáttamanns sem aðilar koma sér saman um að skipa. Náist ekki lausn með þeim hætti skal málinu skotið til úrlausnar gerðardóms sem skipaður skal einum gerðardómsmanni skipuðum af stjórn SÍM, öðrum skipuðum af útboðsaðila en viðkomandi héraðsdómari skal skipa oddamann sem jafnframt verði formaður gerðardóms nema annað sé tekið fram í keppnislýsingu.
Gerðardómur úrskurðar jafnramt um hvor málsaðila skuli bera kostnað við gerðardóminn í hverju máli og hafi til hliðsjónar reglur eml nr. 91/1991, XXI kafla laganna